Menning

Fengu yfir sig slím ef ræðurnar voru of langar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sjónvarpskonan Eva Laufey Hermannsdóttir var valin sjónvarpskona ársins fyrir þátt sinn Blindur bakstur en þátturinn hlaut einnig verðlaun sem besti fjölskylduþáttur ársins.
Sjónvarpskonan Eva Laufey Hermannsdóttir var valin sjónvarpskona ársins fyrir þátt sinn Blindur bakstur en þátturinn hlaut einnig verðlaun sem besti fjölskylduþáttur ársins. Sögur

Sögur - verðlaunahátíð barnanna var haldin í fjórða sinn um helgina. Þar verðlauna börn á aldrinum sex til tólf ára það menningarefni sem þeim finnst hafa staðið upp úr á árinu auk þess sem sögur, leikrit, lög og handrit barna hljóta verðlaun.

Hátíðin er ein skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins en þar tíðkast að sprauta slími á verðlaunahafa haldi þeir of langa þakkarræðu. Fjölmargir verðlaunahafar fengu að finna fyrir því.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitti verðlaun í flokki smásagna en þar hlutu þau Ásgeir Atli Rúnarsson og Sigríður Þóra Gabríelsdóttir verðlaun. Umslagið með nafni sigurvegaranna var falið í rauðu slími en forsetinn gerði sér lítið fyrir og óð ofan í sullið. Laddi fékk þar sérstök heiðursverðlaun. 

Laddi tók við heiðursverðlaunum hátíðarinnar.Sögur

Sjónvarpskonan Eva Laufey Hermannsdóttir var valin sjónvarpskona ársins fyrir þátt sinn Blindur bakstur en þátturinn hlaut einnig verðlaun sem besti fjölskylduþáttur ársins.

Daði og Gagnamagnið hlutu verðlaun fyrir lag sitt 10 Years auk þess sem Daði var valinn flytjandi ársins. Jón Jónsson og einar Lövdahl hlutu verðlaun fyrir texta lagsins Ef ástin er hrein.

Verðlaunahátíðin verður að teljast ein sú hressasta hér á landi.Sögur

Hér fyrir neðan má sjá helstu verðlaun

Lag ársins:

10 Years – Daði & Gagnmagnið

Lagatexti ársins:

Ef ástin er hrein – Jón Jónsson og Einar Lövdahl

Tónlistarflytjandi ársins:

Daði Freyr

Barna- og unglingasjónvarpsþáttur ársins:

Krakkaskaupið - RÚV

Verðlaunahátíðin verður að teljast sú hressasta hér á landi.Sögur

Fjölskyldusjónvarpsþáttur ársins:

Blindur bakstur – Stöð 2

Sjónvarpsstjarna ársins:

Eva Laufey Kjaran

Leiksýning ársins:

Kardemommubærinn – Þjóðleikhúsið

Leikari/leikkona ársins:

Ræningjarnir – Kardemommubærinn - Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson og Sverrir Þór Sverrisson

Eva Laufey Kjaran fór út fyrir tímamörkin þegar kom að ræðuhöldum.Sögur

Bók ársins:

Orri óstöðvandi, bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson

Þýdd bók ársins:

Dagbók Kidda klaufa, Snjóstríðið - Jeff Kinney – Þýðing Helgi Jónsson

Smásögur ársins:

Ævintýravíddin – Ásgeir Atli Rúnarsson

Soffía frænka – Sigríður Þóra Gabríelsdóttir

Leikrit ársins:

Álfrún álfkona – Oktavía Gunnarsdóttir

Undarlega eykartréð – Bergrós Níelsdóttir og Kolfinna Stefánsdóttir

Stuttmyndir ársins:

Hvít spor – Ari Jökull Óskarsson, Kristinn Logi Ragnarsson, Sigurður Arnar Hjálmarsson og Þór Gunnlaugsson

Björgunarleiðangurinn – Úlfhildur Júlía Stephensen og Dúna Steinunn Þorgeirsdóttir

Heimsókn hjá ömmu og afa – Katrín Rós Harðardóttir

Jón Jónsson lenti í slíminu.Sögur

Tónlist ársins:

Nú sé ég allt – Gíta Guðrún Hannesdóttir

Norðurljósin – Aníta Lind Arnþórsdóttir og Urður Eir Baldursdóttir

Vonin er sterk – Birnir Eiðar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×