Umfjöllun: Tinda­stóll - Þór/KA 1-2 | Dramatík í fyrsta Norður­lands­slagnum í efstu deild

Anton Ingi Leifsson skrifar
visir-img
vísir/hulda margrét

Þór/KA vann fyrsta norðurlandaslaginn í efstu deild kvenna er liðið hafði betur gegn Tindastóll, 2-1, er þau mættust á Sauðárkróki í kvöld.

Nýliðarnir í Tindastól höfðu farið ágætlega af stað á meðan Þór/KA var einungis með þrjú stig eftir fyrstu fjóra leikina.

Þór/KA var meira með boltann í fyrri hálfleik og stýrðu nokkurn veginn ferðinni en það voru heimastúlkur sem komust yfir.

Eftir aukaspyrnu á 22. mínútu var það, ekki mjög óvænt, Murielle Tiernan sem kom boltanum í netið. Slök dekkning hjá Þór/KA en vel útfært hjá heimastúlkum.

Þannig stóðu leikar í hálfleik en Þór/KA stýrði áfram ferðinni í síðari hálfleik án þess að skapa sér góð færi. Heimastúlkur voru þéttar og gerðu síðan vel með boltann.

Leikurinn breyttist er Sandra Nabweteme kom inn af bekknum. Hún jafnaði metin á 73. mínútu og skoraði svo sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins. Lokatölur 2-1.

Af hverju vann Þór/KA?

Sandra Nabweteme. Allt, allt annað að sjá Þór/KA-liðið eftir að hún kom inn á. Þær höfðu nánast ekkert skapað sér framan af leik en hún er ansi lipur með boltann og gerði vel í mörkunum þó að Stólarnir verða ansi svekktir með varnarleikinn í mörkunum tveimur.

Hverjar stóðu upp úr?

Aftur: Sandra Nabweteme. Tuttugu mínútur. Tvö mörk. Það er ágætis tölfræði. Rosalegur kraftur í henni og hún er lunkin fótboltakona. Amber Kristin Michel í marki Tindastóls er einnig ansi góður markvörður. Hún varði vel, meðal annars, undir lok leiksins.

Hvað gekk illa?

Varnarleikur Tindastóls í báðum mörkunum var ekki til útflutnings. Þær þurfa gera betur. Í fyrra markinu var það mistök í uppspili og síðara markið var misskilningur í talningu sem skildi Söndru aleina á fjærstönginni.

Hvað gerist næst?

Það er bara áfram gakk hjá Stólunum sem mæta Íslandsmeisturum Breiðablik í bikarkeppninni á mánudaginn áður en Valur bíður í deildinni. Þór/KA mætir FH í bikarnum og svo Þrótti í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira