Villarreal Evrópu­­deildar­­meistari eftir ó­trú­lega víta­­­spyrnu­­keppni

Anton Ingi Leifsson skrifar
David de Gea varði ekki eitt af þeim ellefu vítum sem hann fékk á sig og klúðraði síðustu spyrnu United.
David de Gea varði ekki eitt af þeim ellefu vítum sem hann fékk á sig og klúðraði síðustu spyrnu United. Maja Hitij/Getty Images

Villarreal er Evrópudeildarmeistari eftir sigur á Manchester United í úrslitaleiknum í Gdansk í kvöld. Úrslitin réðust eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni.

United réði ferðinni í upphafi leiksins og voru Spánverjarnir neðarlega á vellinum en vörðust fimlega.

Það voru hins vegar Villarreal sem komst yfir í leiknum á 29. mínútu. Eftir aukaspyrnu langt utan af velli kom Gerard Moreno boltanum framhjá David de Gea í markinu.

United tók enn meiri völdin eftir markið án þess að skapa sér mörg opin marktækifæri og þeir spænsku leiddu í hálfleik.

Það var á tíundu mínútu sem United náði að jafna metin. Eftir darraðadans féll boltinn fyrir fætur Edinson Cavani sem kom boltanum auðveldlega í netið.

Leikmyndin breyttist ekkert. Villarreal reyndi að lokka United fram á völlinn og fara hratt á þá á meðan United reyndi að skapa sér færi.

Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja í Gdansk.

Á meðan Unai Emery, stjóri Villarreal, hreyfði vel við liði sínu kom fyrsta skipting Ole Gunnars Solskjær á 100. mínútu.

United reyndi og reyndi að opna Villarreal en þeir vörðust vel og voru skipulagðir.

Framlengin var ekki mikið fyrir augað. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni.

Í vítaspyrnukeppninni skoruðu bæði lið úr fyrstu tíu spyrnum sínum og þá var röðin komin að markverðinum. Rulli skoraði fyrir Villarreal og varði vítaspyrnu David De Gea.

Það er því Villarral sem er Evrópudeildarmeistari tímabilð 2020/2021.

Vítaspyrnukeppnin:

1-0 Gerard Moreno skorar fyrir Villarreal

1-1 Juan Mata skorar fyrir Manchester United

2-1 Dani Raba skorar fyrir Villareal

2-2 Alex Telles skorar fyrir Manchester United

3-2 Paco Alcacer skorar fyrir Villarreal

3-3 Bruno Fernandes skorar fyrir Manchester United

4-3 Alberto Moreno skorar fyrir Villarreal

4-4 Marcus Rashford skorar fyrir Manchester United

5-4 Dani Parejo skorar fyrir Villarreal

5-5 Edinson Cavani skorar fyrir Manchester United

6-5 Moi Gomez skorar fyrir Villarreal

6-6 Fred skorar fyrir Manchester United

7-6 Raul Albiol skorar fyrir Villarreal

7-7 Daniel James skorar fyrir Manchester United

8-7 Francis Coquelin skorar fyrir Villarreal

8-8 Luke Shaw skorar fyrir Manchester United

9-8 Mario Gaspar skorar fyrir Villarreal

9-9 Axel Tuanzebe skorar fyrir Manchester United

10-9 Pau Torres skorar fyrir Villarreal

10-10 Victor Lindelöf skorar fyrir Manchester United

11-10 Rulli skorar fyrir Villarreal

11-10 Rulli ver frá David de Gea


Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira