Tíska og hönnun

Upplifunin tikkaði í öll boxin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Helgi Ómarsson var heillaður að nýjum ilmi Fischersund systkinanna Lilju, Ingibjargar, Sigurrósar og Jónsa. 
Helgi Ómarsson var heillaður að nýjum ilmi Fischersund systkinanna Lilju, Ingibjargar, Sigurrósar og Jónsa.  Helgi Ómars

HönnunarMars fer fram þessa dagana og fengum við Helga Ómars, ljósmyndara og bloggara á Trendnet, til að segja okkur hvað heillaði hann mest á fjölbreyttri dagskrá hátíðarinnar í ár.

Hann segir að þessi vika sé eiginlega eins og jólin, því hann er mikill aðdáandi bæði Eurovision og íslenskrar hönnunar. Hann fylgist vel með keppninni og hoppar á milli sýningarstaða HönnunarMars þess á milli.

ÚTILYKT

„Ég fór á event hjá 66°Norður x Fishersund, tvö gjörsamlega stórkostleg og drífandi merki á Íslenskum markaði og íslenskri hönnun. Eventinn var ekki bara fallegur og visual, heldur fræðandi og hálf dáleiðandi. Músíkkinn held ég kom frá íslenskri náttúru, video verkin voru falleg fyrir augun og svo algjört partý fyrir lyktarskynið. Svo þetta tikkaði í öll boxin þessi upplifun, ég vildi eiginlega óska þess að þetta væri áframkeyrandi sýning (kannski er það það) - því ég mundi hvetja alla til að fara og skoða. Ilmurinn eins og hinir frá Fishersund var algjör unaður. Það kom smá Íslandsstolt þarna, ég ætla ekki að ljúga.“

Sjá einnig: 66°Norður og Fischersund hönnuðu ilmvatn innblásið af íslenskri útilykt

SPLASH! - Hildur Yeoman

„Ég er mikill aðdáandi Hildar Yeoman, bíð spenntur eftir unisex fatnaði. Hugarheimurinn hennar er eitthvað svo stórkostlegur og svo er hún sjálf líka bara svo frábær. Ég er alltaf spenntur fyrir því að sjá hvað hún gerir næst svo þykir ómissandi að sjá hennar viðburð.“

Sjá einnig: Innblásin af sólinni, sundferðum og sumarævintýrum

Útskriftarsýning LHÍ - af ásettu ráði

„Það er alltaf gaman að sjá framtíð hönnunar og listar hjá Listarháskólanum. Hef sérstaklega gaman af öllum viðburðum fatahönnunarbraut skólans. Mikilvægt að þessir verðandi listamenn sjá stuðning og áhuga okkar fólksins. Svo er gríðarlega spenntur fyrir því.“

Sjá einnig: Uppskeruhátíð ríflega sjötíu nemenda

Hægt er að kynna sér alla dagskránna á vef HönnunarMars. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Helgi tók á frumsýningunni á ÚTILYKT. 

Helgi Ómars
Helgi Ómars
Helgi Ómars
Helgi Ómars
Helgi Ómars
Helgi Ómars

Tengdar fréttir

Innblásin af sólinni, sundferðum og sumarævintýrum

„Nýja línan okkar er algjör gleðisprengja. Hún er innblásin af sólinni, strandpartýum, sundferðum og sumarævintýrum,“ segir hönnuðurinn Hildur Yeoman um línuna SPLASH! Sem hún sýnir á HönnunarMars í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×