Gylfi Þór spilaði síðari hálf­leik í tapi gegn botn­liðinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hinn 17 ára gamli Daniel Jebbison fagnar því sem reyndist sigurmark Sheffield í kvöld.
Hinn 17 ára gamli Daniel Jebbison fagnar því sem reyndist sigurmark Sheffield í kvöld. EPA-EFE/Alex Pantling

Sheffield United vann óvæntan 1-0 útisigur á Everton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson hóf leik dagsins á bekknum og gat því lítið gert þegar hinn 17 ár agamli Daniel Jebbison kom Sheffield United óvænt yfir á 7. mínútu leiksins. Staðan var enn 1-0 Sheffield í vil þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Gylfi Þór kom inn af bekknum í hálfleik og gekk jafn illa og samherjum sínum að finna glufur á þéttri vörn gestanna. Fór það svo að botnliðið hélt út og vann 1-0 sigur á Goodison Park.

Everton er í 8. sæti þegar 36 umferðum er lokið með 56 stig. Sheffield United situr sem fastast á botni deildarinnar með aðeins 20 stig og er löngu fallið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira