Möguleikar AZ á Meistaradeildarsæti svo gott sem úr sögunni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. maí 2021 14:35 Albert í leik með AZ á leiktíðinni. EPA-EFE/SERGEY DOLZHENKO AZ Alkmaar gerði markalaust jafntefli við Groningen í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Það þýðir að möguleikar AZ á því að ná 2. sæti og þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eru svo gott sem úr sögunni.
Albert Guðmundsson hóf leik sem fremsti maður hjá AZ sem tókst ekki að sækja gull í greipar Groningen í dag. Albert var tekinn af velli á 89. mínútu er AZ reyndi að hrista upp í sóknarleik sínum. Gamla brýnið Arjen Robben kom inn af bekknum hjá heimamönnum á 83. mínútu en tókst heldur ekki að setja mark sitt á leikinn. Þegar ein umferð er eftir í hollensku úrvalsdeildinni er AZ Alkmaar í 3. sæti með 68 stig. Það er öruggt að liðið fer ekki neðar en Vitesse er í 4. sæti með 61 stig. PSV vann hins vegar 4-2 sigur á Zwolle í dag og er því með 71 stig. PSV er einnig með betri markatölu og því þyrfti AZ að vinna stórsigur á Heracles í síðustu umferð deildarinnar og treysta á að Utrecht leggi PSV.
Fótbolti Hollenski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira