Íslenski boltinn

Lof og last 3. um­­­­­­­ferðar: Sóknar­­­­leikur blómstraði á kostnað varnar­­­leiks, Mikkel­­­­sen, Páez, Hákon og Óli Jóh

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Thomas Mikkelsen [fyrir miðju] skoraði þrjú og lagði upp eitt í 4-0 sigri Breiðabliks.
Thomas Mikkelsen [fyrir miðju] skoraði þrjú og lagði upp eitt í 4-0 sigri Breiðabliks. Vísir/Hulda Margrét

Þriðju umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Lof

Arnar Grétarsson

Lið Akureyringa hefur fengið mikið lof til þessa. Sjö stig að loknum þremur leikjum, sex mörk skoruð og eitt fengið á sig. Sigur KA á Leikni Reykjavík var enn merkilegri fyrir þær sakir að í raun vantaði fimm byrjunarliðs sem og Elfar Árna Aðalsteinsson í lið KA manna.

Það kom ekki að sök í gær.

Sóknarleikur umferðarinnar

Sóknarleikur var í fyrirrúmi í 3. umferð Pepsi Max deildarinnar. Alls voru skoruð 25 mörk í leikjunum sex. 

„Aðeins“ voru skoruð tvö mörk í Lautinni, þrjú á Dalvík, fjögur á Kópavogsvelli, fimm í Garðabænum sem og Hlíðarenda. Flest mörk litu svo dagsins ljós í Kaplakrika en þar voru sex mörk skoruð.

Danskir framherjar: 

  1. Thomas Mikkelsen
  2. Nikolaj Hansen
  3. Patrick Pedersen

Sóknarleikurinn var eins og áður sagði í fyrirrúmi og segja má að danskir framherjar hafi stolið senunni. Mikkelsen skoraði þrjú og lagði upp eitt í 4-0 sigri Breiðabliks. Hansen skoraði tvö í 3-2 sigri Víkinga og Pedersen skoraði eitt mark í torsóttum sigri Vals á HK.

Tristan Freyr

Talandi um sóknarleik og mörk. Það er ekki annað hægt en að nefna Tristan Frey Ingólfsson, vinstri bakvörð Stjörnunnar. Hann skoraði eitt af mörkum sumarsins í svekkjandi tapi Garðbæinga. 

Mörk sem þessi eiga skilið að tryggja allavega stig.

Óli Jóh

Ólafur Jóhannesson - fyrrum þjálfari FH, Vals, íslenska landsliðsins sem og annarra liða - er einn af sérfræðingum Pepsi Max Stúkunnar í sumar. Hann hefur komið eins og stormsveipur inn í umfjöllun um íslenska boltann og hélt því áfram í gærkvöld.

„Hannes situr þarna í middle of nowhere,“ sagði Óli Jó um fyrra mark HK gegn Val í gær. Það skoraði Stefan Alexander Ljubicic með skalla af markteig en Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður Íslands, sat sem fastast á línunni.

Klippa: Óli Jóh og Atli Viðar

„Af því hann brýtur ekki á honum Atli. Týpískur framherji, það má ekki koma við ykkur og þá farið þið niður,“ sagði Óli við Atla Viðar Björnsson, hinn sérfræðing Pepsi Max Stúkunnar í gærkvöld. Þetta kostulega spjall má sjá í spilaranum hér að ofan.

Last

Varnarleikur umferðarinnar

Sóknarleikurinn blómstraði og þá er frekar einfalt að benda á að varnarleikur liðanna hafi ekki verið nægilega góður. Mikið af mörkum komu eftir slakan varnarleik og lélega leikstjórnun. 

Til að mynda fengu Leiknismenn á sig mjög klaufalega vítaspyrnu á Dalvík og Keflvíkingar gerðu slíkt hið sama á Kópavogsvelli. Standa í lappirnar innan vítateigs.

Brotið sem leiddi af sér vítaspyrnu Breiðabliks gegn Keflavík í uppsiglingu.Vísir/Hulda Margrét

Bæði mörkin í Lautinni komu eftir fast leikatriði þar sem boltinn rataði á fjærstöng og varnarliðið vissi ekki hvort það væri að koma eða fara.

Í fyrra var kórónuveirunni og öllum þeim pásum sem henni fylgdu kennt um slakan varnarleik liða deildarinnar. Vissulega kom stutt pása nú rétt fyrir mót en þjálfarar deildarinnar geta vart notað sömu afsökun annað árið í röð.

Octavio Andrés Páez Gil 

Octavio Páez gekk til liðs við nýliða Leikni fyrir tímabilið og fékk loksins mínútur á vellinum er liðið var 3-0 undir gegn KA á Dalvík.  Tæpum tólf mínútum eftir að hann kom af bekknum fór hann í  einhverja glórulausustu tæklingu síðari ára.

Hann fékk umsvifalaust rautt spjald og verður ekki með Breiðhyltingum í næsta leik hið minnsta. Tæklinguna má sjá í myndbandinu hér að ofan eftir eina mínútu og 55 sekúndur.

Hákon Ingi Jónsson

Skagamaðurinn Hákon Ingi nældi sér í tvö spjöld á þriggja mínútna kafla um miðbik fyrri hálfleiks í leik ÍA og FH. Er hann fékk spjöldin tvö var staðan 1-0 Skagamönnum í vil en aðeins mínútu eftir að Hákon var sendur í sturtu jafnaði FH metin og fór það svo að Hafnfirðingar unnu öruggan 5-1 sigur. 

Um er að ræða nnað rauða spjaldið sem Skagamenn fá í fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Báðir leikirnir hafa tapast.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: KA - Leiknir 3-0 | Öruggt á Dalvík

KA er með sjö stig eftir þrjá leiki en þeir unnu 3-0 sigur á Leikni í kvöld. Leikurinn fór fram á nýja gervigrasvellinum á Dalvík. Ekki var hægt að spila á Greifavellinum á Akureyri þar sem hann kemur illa undan vetri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×