Innlent

Land­spítalinn þurfti að farga rúm­lega hundrað skömmtum af bólu­efni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Bóluefni AstraZeneca geymist í um sex tíma eftir að það hefur verið blandað.
Bóluefni AstraZeneca geymist í um sex tíma eftir að það hefur verið blandað. Vísir/Vilhelm

Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni, eftir að tekin var ákvörðun um að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefninu í síðustu viku. Búið var að blanda skammtana og bólusetning á starfsmönnum spítalans hafin þann daginn.

Þetta staðfestir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, í samtali við Vísi. Hún segir lán í óláni að ekki hafi þurft að farga fleiri skömmtum en raunin varð.

„Það var hafin bólusetning þarna um morguninn. Þá var búið að blanda skammta fyrir bólusetningartímabilið þann daginn,“ segir Anna Sigrún, en bóluefni AstraZeneca geymist í um sex klukkutíma eftir að það hefur verið blandað.

„Við náðum ekki að nýta það, því það komu þessi leiðinlegu skilaboð um að við þyrftum að hætta. Það þurfti því að farga rúmlega hundrað skömmtum,“ segir Anna Sigrún.

Sex tíma ending eftir blöndun

Bólusetning var hafin á spítalanum þegar tilkynnt var um tímabundna stöðvun á notkun bóluefnis AstraZeneca. Ísland er eitt þeirra landa sem hefur gert tímabundið hlé á bólusetningu með efninu vegna tilkynninga um blóðtappa í kjölfar bólusetningar, en rannsóknir á mögulegum orsakatengslum standa nú yfir. Meðal annarra ríkja sem hafa gert hlé á bólusetningu eru Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Þýskaland.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sagði fyrir helgi að ekki væri ástæða til að hætta notkun bóluefnisins og Lyfjastofnun Evrópu gaf það út í dag að hún teldi ávinning af notkun þess vegi þyngra en hættan á mögulegum aukaverkunum.

„Það var nánast fólk með nálina í öxlinni þegar tilkynningin kom. Við vorum byrjuð að bólusetja þennan dag. Við blöndum samdægurs, því þetta lifir í svo stuttan tíma. Það var sem betur fer ekki meira en þetta,“ segir Anna Sigrún.

Hún segir þá heppilegt að bóluefni AstraZeneca hafi langan geymslutíma eftir að innsigli þess hefur verið rofið, lengri en til að mynda bóluefni Pfizer.

„Ef þú ert byrjaður að blanda og átt skammtana klára, þá taparðu þeim innan sex tíma. Þess vegna höfum við og heilsugæslan verið þá reglu að ef eitthvað er að ganga af hjá okkur, eftir bólusetningar dagsins, þá erum við með lista af fólki sem við hringjum í sem getur komið og fengið bólusetningu.“

Þannig hefur fólk úr aldurshópum fyrir neðan þá sem skráðir voru í bólusetningu stundum verið kallað fyrr til, þegar allir sem vilja úr viðkomandi hópi hafa verið bólusettir þann daginn. Þannig sé hægt að tryggja að sem minnst af bóluefni fari til spillis.

Bólusetning á spítalanum gengið vel 

Anna Sigrún segir starfsmenn hafa sýnt því skilning að gera hafi þurft hlé á bólusetningum, þó margir þeirra vilji vera bólusettir sem fyrst. Koma þurfi í ljós hvort stöðvunin á notkun efnisins verði til þess að starfsfólk veigri sér við að þiggja bólusetningu með efninu frá AstraZeneca.

„Fólk fær boð og annað hvort þiggur það bólusetningu eða ekki. Það hefur hins vegar gengið mjög vel, fólk hefur verið að þiggja bólusetningar almennt.“

Afföll hafi verið eins og búist var við, einfaldlega vegna veikinda á bólusetningardegi og annarra tilfallandi forfalla. Þá hafi einhverjir ófrískir starfsmenn spítalans ákveðið að bíða með að þiggja bólusetningu.

„Bólusetning hefur gengið vel fram að þessu og þetta var svakalega svekkjandi,“ segir Anna Sigrún að lokum um þá rúmlega hundrað bóluefnaskammta sem þurfti að farga.


Tengdar fréttir

Svíar stöðva einnig notkun á bólu­efni AstraZene­ca

Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×