Bíó og sjónvarp

Konur fyrir­ferða­miklar í til­nefningum til Óskarsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Emerald Fennell og Chloé Zhao eru báðar tilnefndar sem besti leikstjórinn en aldrei áður hafa tvær konur verið í þeim flokki.
Emerald Fennell og Chloé Zhao eru báðar tilnefndar sem besti leikstjórinn en aldrei áður hafa tvær konur verið í þeim flokki. Vísir/getty

Í dag voru tilnefningar til Óskarsins árið 2021 kynntar í beinni útsendingu á YouTube-síðu Óskarsverðlaunanna.

Það voru þau Priyanka Chopra Jonas og Nick Jonas sem sáu um útsendinguna og voru þau staðsett í London í beinu útsendingunni. 

Nú fer hátíðin fram tveimur mánuðum seinna en vanalega eða þann 25. apríl. Það var ákveðið vegna fárra kvikmynda sem komu út á árinu 2020.

Sjötíu konur fengu tilnefningar

Verðlaunahátíðin verður haldin í Dolby leikhúsinu í Los Angeles eins og undanfarin ár en þetta er í 93. skipti sem Óskarsverðlaunin eru afhent.

Það má með sanni segja að Óskarinn í ár verði sá besti fyrir konur í sögunni. Sjötíu konur fengu alls 76 tilnefningar.

Tvær konur eru tilnefndar sem besti leikstjórinn, þær Emerald Fennell og Chloé Zhao og hefur það aldrei áður gerst.

Netflix kvikmyndin Mank fær flestar tilnefningar eða tíu alls. Þá mega Íslendingar vel við una því lagið Húsavík er tilnefnt til Óskarsverðlauna en lagið hljómaði í Eurovision-kvikmynd Will Ferrell. Auk þess fær stuttmyndin Já-fólkið eftir Gísla Darra Halldórsson einnig tilnefningu til Óskarsverðlaunanna og er Arnar Gunnarsson framleiðandi hennar.

Hér að neðan má sjá allar þær kvikmyndir sem tilnefndar eru:

Besta kvikmynd

  • The Father
  • Judas and the Black Messiah
  • Mank
  • Minari
  • Nomadland
  • Promising Young Woman
  • Sound of Metal
  • The Trial of the Chicago 7

Besta leikkonan í aukahlutverki

  • Maria Bakalova, Borat Subsequent Moviefilm
  • Glenn Close, Hillbilly Elegy
  • Olivia Colman, The Father
  • Amanda Seyfried, Mank
  • Youn Yuh-jung, Minari

Besti leikari í aukahlutverki

  • Sacha Baron Cohen, The Trial of the Chicago 7
  • Daniel Kaluuya, Judas and the Black Messiah
  • Leslie Odom Jr., One Night in Miami
  • Paul Raci, Sound of Metal
  • Lakeith Stanfield, Judas and the Black Messiah

Besta erlenda kvikmynd

  • Another Round - Danmörk
  • Better Days - Hong Kong
  • Collective - Rúmenía
  • The Man Who Sold His Skin - Túnis
  • Qu Vadis, Aida? - Bosnía

Besta stuttheimildarmyndin 

  • Colette
  • A Concerto Is a Conversation
  • Do Not Split
  • Hunger Ward
  • A Love Song For Latasha

Besta heimildarmyndin

  • Collective
  • Crip Camp
  • The Mole Agent
  • My Octopus Teacher
  • Time

Besta lag í kvikmynd

  • Fight For You úr Judas and the Black Messiah
  • Hear My Voice úr The Trial of the Chicago 7
  • Husavik úr Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga
  • lo Sì (Seen) úr The Life Ahead (La Vita Davanti a Se)
  • Speak Now úr One Night in Miami...

Besta teiknimyndin í fullri lengd

  • Onward
  • Over the Moon
  • A Shaun the Sheep Movie: Farmageddon
  • Soul
  • Wolfwalkers

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni

  • Borat Subsequent MovieFilm
  • The Father
  • Nomadland
  • One Night in Miami
  • The White Tiger

Besta handritið

  • Judas and the Black Messiah
  • Minari
  • Promising Young Woman
  • Sound of Metal
  • The Trial of the Chicago 7

Besti leikari í aðalhlutverki

  • Riz Ahmed, Sound of Metal
  • Chadwick Boseman, Ma Rainey's Black Bottom
  • Anthony Hopkins, The Father
  • Gary Oldman, Mank
  • Steven Yeun, Minari

Besta leikkonan í aðalhlutverki

  • Viola Davis, Ma Rainey's Black Bottom
  • Andra Day, The United States vs. Billie Holiday
  • Vanessa Kirby, Pieces of a Woman
  • Frances McDormand, Nomadland
  • Carey Mulligan, Promising Young Woman´

Besti leikstjórinn

  • Thomas Vinterberg, Another Round
  • David Fincher, Mank
  • Lee Isaac Chung, Minari
  • Chloe Zhao, Nomadland
  • Emerald Fennell, Promising Young Woman

Besta kvikmyndataka

  • Sean Bobbitt, Judas and the Black Messiah
  • Erik Messerschmidt, Mank
  • Dariusz Wolski, News of the World
  • Joshua James Richards, Nomadland
  • Phedon Papamichael , The Trial of the Chicago 7

Bestu búningar

  • Emma
  • Ma Rainey's Blackbottom
  • Mank
  • Mulan
  • Pinocchio

Besta hljóðblöndun

  • Greyhound
  • Mank
  • News of the World
  • Soul
  • Sound of Metal

Besta stuttteiknimyndin

  • Burrow
  • Genius Loci
  • If Anything Happens I Love You
  • Opera
  • Já-fólkið 

Besta tónlist í kvikmynd

  • Da 5 Bloods
  • Mank
  • Minari
  • News of the World
  • Soul

Bestu tæknibrellur

  • Love and Monsters
  • The Midnight Sky
  • Mulan
  • The One and Only Ivan
  • Tenet

Besta klippingin

  • The Father
  • Nomadland
  • Promising Young Woman
  • Sound of Metal
  • The Trial of the Chicago 7

Besta hár og förðun

  • Emma
  • Hillbilly Elegy
  • Ma Rainey's Black Bottom
  • Mank
  • Pinocchio

Leikmyndahönnun

  • The Father
  • Ma Rainey's Black Bottom
  • Mank
  • News of the World
  • Tenet - Eggert Ketilson var einn af yfirmönnum kvikmyndarinnar í leikmyndhönnum og komu margir Íslendingar að þeirri vinnu. 

Hér að neðan má horfa á útsendinguna í heild sinni:


Tengdar fréttir

Já-fólkið hans Gísla Darra tilnefnd til Óskarsverðlauna

Stuttmyndin Já-fólkið eftir Gísla Darra Halldórsson hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta stutta teiknimyndin, í flokknum „Animated Short film“. Þetta var tilkynnt rétt í þessu í beinni útsendingu Óskarsverðlaunaakademíunnar.

Húsavík tilnefnt til Óskarsins

Nú fyrir stundu varð það ljóst að lagið Húsavík er tilnefnt til Óskarsverðlauna í flokknum besta frumsamda lagið í kvikmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×