Menning

Átta milljónir til Árna­stofnunar vegna heim­komu­af­mælis hand­rita

Atli Ísleifsson skrifar
Fjöldi safnaðist saman á Miðbakka í Reykjavík þann 21. apríl 1971 þegar Vædderen lagðist að bryggju með Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða um borð.
Fjöldi safnaðist saman á Miðbakka í Reykjavík þann 21. apríl 1971 þegar Vædderen lagðist að bryggju með Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða um borð. Stjórnarráð Íslands

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um átta milljónir króna vegna heimkomuafmælis handritanna. 50 ár eru brátt liðin frá því fyrstu handritunum var skilað til Íslands frá Danmörku.

Þann 21. apríl 1971 lagði herskipið Vædderen að bryggju í Reykjavík með Konungsbók Eddukvæða og Flateyjarbók í farteskinu. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að mikill mannfjöldi hafi beðið á bryggjunni og þjóðhátíðarstemning í landinu myndast við þessi tímamót.

„Stofnun Árna Magnússonar hefur undanfarna mánuði minnst þessara tímamóta með verkefninu „Handritin til barnanna“, sem felur í sér nýstárlega kynningu á handritaarfinum, handritunum og efni þeirra í skólum um allt land, á vefnum og í fjölmiðlum.

Til stendur að Árnastofnun haldi í apríl hátíð fyrir ungu kynslóðina á afmælisdeginum og verður Konungsbók Eddukvæða í brennidepli þeirrar dagskrár. Þá verður sett upp ljósmyndasýning, fyrir utan Hörpu, frá handritaheimkomunni og af völdum handritum. Í Ásmundarsal verður sýning sem hverfist um Möðruvallabók. Boðið verður upp á lifandi handritasmiðju, listaverk tengd Íslendingasögunum og sagnaskemmtun. Í Bíó Paradís verða sýndar kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir efni handritanna.

Styrkurinn fer af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Hand­ritin í Árna­garði ó­hult

„Það fór ekkert inn til okkar og handritin eru óhult.“ Þetta segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, í samtali við Vísi, aðspurð um hvort að vatnslekinn í byggingum Háskóla Íslands hafi náð inn í handritageymslur stofnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×