Gylfi spilaði er E­ver­ton marði Rot­her­ham eftir fram­lengingu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi var settur inn sem dýpsti miðjumaður Everton.
Gylfi var settur inn sem dýpsti miðjumaður Everton. Emma Simpson/Everton

Everton þurfti framlengingu til þess að slá B-deildarliðið Rotherham United úr enska bikarnum er liðin mættust á Goodison Park í dag. Lokatölur 2-1.

Everton byrjaði vel og sýndi klærnar. Fyrsta markið kom strax á níundu mínútu en eftir frábæran undirbúning Anthony Gordon kláraði Cenk Tosun færið meistaralega.

Gestirnir unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og þrátt fyrir þó nokkrar fínar tilraunir þá náðu þeir ekki að jafna metin fyrir leikhlé.

Staðan var hins vegar orðinn jöfn eftir 56 mínútur. Matthew Olosunde jafnaði þá metin eftir vandræðagang í vörn Everton.

Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á er tæpar tuttugu ogf imm mínútur voru til leiksloka en ekkert mark var skorað svo framlengja þurfti leikinn.

Það voru einungis spilaðar þrjár mínútur af framlengingunni er Everton komst yfir. James Rodriguez, sem hafði átt dapran dag, gaf boltanum inn fyrir vörnina á varamanninn Abdoulaye Doucoure sem skoraði.

Það reyndist sigurmarkið og Everton, rétt eins og grannar sínir í Liverpool komnir í 32 liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira