Erlent

Borgarstjóri verður forseti

Traian Basescu, borgarstjóri í Búkarest, bar sigurorð af Adrian Nastase forsætisráðherra í rúmensku forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Úrslitin lágu fyrir í gær, Basescu hlaut 51,2 prósent atkvæða en Nastase 48,8 prósent. Basescu, frambjóðandi Réttlætis- og sannleikabandalagsins, gerði baráttu gegn spillingu að meginmáli í kosningabaráttu sinni. Hann bar sigurorð af Nastase, frambjóðanda jafnaðarmanna, sem fóru með sigur af hólmi í þingkosningum í lok síðasta mánaðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×