Bóluefnabanki settur á laggirnar 11. desember 2004 00:01
Sjö helstu iðnríki heims hafa ákveðið að koma á laggirnar bóluefnabanka, til að verjast sýkla- og efnavopnaárás hryðjuverkamanna, sem talin er geta orðið hvenær sem er. Heilbrigðismálaráðherrar landanna sjö telja nauðsynlegt að koma á laggirnar miðstöð sem tæki ákvarðanir ef útbreidd og mikil hætta stafaði af efnavopnum og sýklaárásum. Þar myndu verða geymdir mörg hundruð milljónir skammta af bólusetningalyfjum. Ákvörðunin kemur í kjölfar umræðu um hættunni á sýklavopnaárás hryðjuverkasamtaka. Ráðherrarnir leggja áherslu á að slík árás gæti verið gerð hvenær sem er, ógnin sé raunveruleg. Sérstöku símasambandi hefur þegar verið komið upp allan sólarhringinn milli heilbrigðismálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims, en það eru Bretland, Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Japan og Bandaríkin. Ráðherra Evrópusambandsins tekur einnig þátt í samstarfinu. Ráðherrarnir segja að miðstöðin, sem verður staðsett í Ottawa í Kanada, gæti ennfremur þjónað hlutverki í viðbúnaði og miðstýringu aðgerða gegn til dæmsi fuglaflensufaraldri. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur þegar varað við því að fuglaflensa, sem geisað hefur í Asíu, geti leitt til mannskæðs inflúensufaraldurs, einhverntíman í framtíðinni. Stofnunin telur að á milli tvær til sjö milljónir manns geti látist af völdum flensunnar, og allt að þriðjungur jarðarbúa veikst. Einungis takmarkað magn er til af inflúensulyfjum í heiminum, og standa nú yfir miklar rannsóknir varðandi þróun á bólefni og aðferðum til að framleiða það í miklu magni.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira