Ófétin komin til Hveragerðis 6. nóvember 2006 12:00 Ævintýri ófétanna Saga og myndskreytingar Rúnu K. Tetzschner vekja lukku hjá yngstu lesendunum.
Eftir endilöngu gólfi bókasafnsins í Hveragerði liggur djúp og mikil sprunga sem er eitt af undrum bæjarins. Sprungan kom í ljós meðan verið var að byggja húsið og geta gestir nú dáðst að þessu náttúrufyrirbæri gegnum gler í gólfinu. En undrin eru fleiri á bókasafninu í Hveragerði því handan sprungunnar eru dularfull óféti og álfaverur uppi um alla veggi. Í hinum björtu sýningarrýmum safnsins hefur óvænt verið skellt upp sýningu á frummyndum listakonunnar Rúnu K. Tetzschner við ævintýri hennar um ófétin. Rúna gaf út bók um ævintýraveröld ófétanna og hafa þau vakið lukku meðal lesenda. Óféti þessi voru eitt sinn blómálfar en hafa ekki lengur vængi heldur krækitær. Hin fjörugu óféti úr ævintýraheimi Rúnu búa í risablómum og flögra um himinblámann á fiðrildum. Ófétin eru agnarsmá, yndisleg og hrekkjótt. Þau gullinhærðu og svarthærðu eru bara alltaf að rífast og slást og berjast því þeim finnst hin svo skrýtin, með svona ólíkan háralit. Listakonan hefur að undanförnu dvalið í listamannahúsinu Varmahlíð í boði Hveragerðisbæjar þar sem hún skrifar framhaldssögu um ófétin og var efnt til sýningarinnar í tilefni af því. Sýningin stendur til 9. nóvember.
Menning Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira