Erlent

Pinochet skal í stofufangelsi

Dómari fyrirskipaði í gær að Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra Síle, skyldi hnepptur í stofufangelsi. Ástæðan er ákærur sem tengjast ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum Pinochet í valdatíð hans. Ákærurnar beinast að Kondóráætluninni, leynilegu samkomulagi herstjórna sem voru við völd í Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Paragvæ, Síle og Úrúgvæ á áttunda áratugnum. Samkomulagið fólst í samvinnu við að elta uppi og myrða stjórnarandstæðinga í ríkjunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×