Erlent

Á þriðja tug létust á sólarhring

Þrettán Írakar létust þegar bílsprengjuárás var gerð í Bagdad í gær og þrír þjóðvarðliðar féllu í bardögum við uppreisnarmenn, þá var eitt ár liðið frá handtöku Saddams Husseins. Sjö bandarískir hermenn féllu í bardögum við andspyrnumenn í vesturhluta Íraks. Hryðjuverkamaður sprengdi sprengjum hlaðinn bíl sinn í loft upp nærri einu hliðanna að græna svæðinu í Bagdad, þar sem helstu stjórnarstofnanir og aðsetur fjölþjóðahersins í Írak er að finna. Læknir á Yarmouk-sjúkrahúsinu sagði að þrettán hefðu látist í sprengingunni og í það minnsta fimmtán særst. Uppreisnarmenn réðust á íraska þjóðvarðliða í Mishahda, norður af Bagdad. Þrír þjóðvarðliðar féllu í þeim átökum. Í gær var greint frá því að sjö bandarískir hermenn hefðu fallið í tveimur bardögum í Anbarhéraði í vesturhluta landsins. Ekki var greint frá því hvar bardagarnir voru háðir en sprengjum var varpað að búðum uppreisnarmanna í Falluja. Yfirmenn Bandaríkjahers lýstu því yfir í síðasta mánuði að herinn hefði náð tökum á Falluja en uppreisnarmenn og Bandaríkjaher berjast þar enn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×