Abbus næsta öruggur um sigur 13. desember 2004 00:01
Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu (PLO) og fyrrum forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, þykir næsta öruggur með sigur í forsetakosningum Palestínu eftir tæpan mánuð. Helsti keppinautur Abbas, Marwan Barghuti, sem hafði mælst með álíka mikið fylgi og Abbas í skoðanakönnunum hefur dregið framboð sitt til baka og eftir það þykir enginn frambjóðendanna sem eftir eru líklegur til að hafa sigur gegn Abbas. Barghuti og Abbas mældust með um það bil 40 prósenta fylgi í skoðanakönnunum, margfalt meira en næstu menn. Mikill munur er á afstöðu Barghuti og Abbas til þess hvernig á að berjast fyrir sjálfstæði Palestínu. Barghuti hefur verið einn af helstu hvatamönnunum að fjögurra ára vopnaðri baráttu Palestínumanna gegn ísraelskum yfirráðum á Vesturbakkanum og í Gaza. Hann hefur áunnið sér virðingu og fylgi fyrir einarða afstöðu sína gegn því að gefa nokkuð eftir af palestínsku landsvæði í samningum við Ísraela. Abbas hefur talað fyrir því að beita friðsamlegum aðgerðum og beitt sér gegn ofbeldisverkum, að mestu þó án árangurs eins og sjá mátti í skammvinnri forsætisráðherratíð hans. Ólíkt Barghuti hefur Abbas áunnið sér traust út fyrir raðir Palestínumanna, þó á kostnað trausts síns meðal Palestínumanna sem álíta margir að hann sé alltof linur í samskiptum við Ísraela. Abbas var útnefndur eftirmaður Jassers Arafats sem formaður Frelsissamtaka Palestínu daginn eftir að Arafat andaðist. Hann var einn af höfundum Oslóarsamkomulagsins og varð fyrsti forsætisráðherra Palestínu. Því embætti sagði hann lausu eftir aðeins fjóra mánuði vegna deilna við Arafat um stjórn á öryggissveitum. Abbas þykir hófsamur og lagði sig fram um að stöðva árásir herskárra hreyfinga á ísraelska borgara. Hann nýtur meiri virðingar á alþjóðavísu en heima við. Ísraelar og Bandaríkjamenn geta hugsað sér að eiga samstarf við hann en sumir Palestínumenn vantreysta honum.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira