Glímir við ókunnugan ljósmyndaþjóf á alheimsnetinu 9. ágúst 2012 09:00 María Guðrún Rúnarsdóttir stendur í stappi við ókunnuga manneskju sem stelur ljósmyndum hennar af Facebook. „
Hún sendi mér póst í byrjun vikunnar þar sem hún þakkar mér fyrir að setja myndirnar mínar inn á Facebook svo hún geti stolið þeim. Ég áttaði mig þá á því að hún hlyti að vera vinur minn á Facebook og þá undir öðru nafni þannig ég ákvað að fara í gegnum vinalistann minn og henda út öllum sem ég þekkti annað hvort lítið eða ekkert. Síðan þá hef ég fengið um fimm vinabeiðnir á dag frá henni og alltaf undir nýju nafni," segir María Guðrún Rúnarsdóttir nemandi í ljósmyndun við BTK skólann í Berlín. Ókunnug manneskja er kallar sig Majapaja Pictures á Facebook hefur stolið fjölda mynda Maríu Guðrúnar en segir síðuna vera aðdáendasíðu. Þetta er í annað sinn sem María Guðrún lendir í því að myndum hennar er stolið og þær notaðar af öðrum án leyfis. Fyrir nokkrum árum var myndum af dóttur hennar stolið af Flickr.com deilisíðunni og einnig af persónulegu bloggi hennar. „Ég hef haldið úti Flickr síðu í mörg ár en fór að ritskoða efnið sem ég setti þar inn eftir að ég komst að því að það væri verið að stela þeim. Í staðinn byrjaði ég að nota Facebook því mér fannst ég geta fylgst betur með efninu þar, en nú þori ég því ekki nema með enn hertara eftirliti," útskýrir hún.Notandinn kallar sig Majapaja Pictures á Facebook.Innt eftir því hvort algengt sé að ljósmyndarar verði varir við að fólk sé að stela verkum þeirra segist María Guðrún hafa heyrt af nokkrum dæmum um slíkt. „Ég veit að ein lenti í því að myndum hennar var stolið og þær seldar undir fölsku nafni." María Guðrún kveðst ekki vita hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir áframhaldandi stuld á verkum hennar annað en að fara varlegar. „Ég held að þetta fólk mundi stela myndunum sama þótt þær væru vatnsmerktar á einhvern hátt. Maður verður bara að fara varlega." sara@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira