Eiga að víkja þegar mál eru í skoðun 9. ágúst 2012 05:45 Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir segir að greinilega hafi verið þörf á stofnun fagráðsins og þau átján tilvik sem ráðið hefur fjallað um séu átján of mörg.Fréttablaðið/Anton „
Það er afar óeðlilegt að fólk sem sakað er um kynferðisbrot, og rökstuddur grunur er fyrir því, sé ekki sett í frí á meðan er verið að rannsaka málið," segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Fagráð þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota hefur tekið á móti ásökunum um kynferðisbrot á hendur alls átján starfsmönnum kirkjunnar. Í þremur þessara átján tilvika hefur fagráðinu borist fleiri en ein ásökun á hendur sama aðila. Fagráðið var stofnað árið 1998. „Þetta er greinilega átján of mikið," segir Agnes. „Hins vegar vitum við að kirkjan stofnaði fagráðið vegna þess að það var talin þörf á því að koma málum sem þessum í skikkanlegan farveg. Og það hefur greinilega sýnt sig að þörfin var fyrir hendi." Fjögur mál af þessum átján voru tilkynnt innan fimm ára frá því að brot átti sér stað, sjö innan tíu ára og tilkynnt var um fjóra einstaklinga ellefu til tuttugu árum eftir að þeir brutu á viðkomandi einstaklingum. Þrjú mál af þessum átján eru enn eldri. Fjórir starfsmenn þjóðkirkjunnar voru sakaðir um kynferðisbrot á síðasta ári, eins og fram kemur í ársskýrslu fagráðsins. Ekki fæst uppgefið hversu margir einstaklingar leituðu til fagráðsins í fyrra, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snýr eitt málið að Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi. Tíu starfsmenn kirkjunnar voru ásakaðir um kynferðisbrot árið 2010. Tveimur var vikið úr starfi, en hvorugur starfaði sem prestur. Sum málanna áttu sér stað þegar þolendur voru börn að aldri og eru fyrnd að lögum. Agnes segist munu beita sér sérstaklega til að koma í veg fyrir að kynferðisbrot eigi sér stað innan kirkjunnar. „Auðvitað vil ég stuðla að því að svona mál finnist ekki í okkar kirkju frekar en í þjóðfélaginu öllu," segir hún. „Ég mun beita mér fyrir því. Þetta er eitthvað sem við höfum reynt að taka alvarlega og það má aldrei sofna á verðinum því þetta eru ekki mál sem klárast bara." sunna@frettabladid.is
Mest lesið Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Fleiri fréttir Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út vegna líkamsárásar á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Sjá meira