Fótbolti

Segir fram­kvæmda­stjórum fé­laganna að halda sig fjarri sviðs­ljósinu: „Eins og þegar dómarinn verður aðal­stjarnan“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lárus Orri þjálfaði uppeldisfélagið sumarið 2017 og 2018.
Lárus Orri þjálfaði uppeldisfélagið sumarið 2017 og 2018. mynd/þórtv

Fyrrum landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Lárus Orri Sigurðsson, virðist vera orðinn þreyttur á því að hlusta á framkvæmdastjóra félaganna og segir þeim að halda sig fjarri sviðsljósinu.

Mikið hefur verið rætt og ritað um fjárhag íslenskra liða að undanförnu vegna kóronuveirunnar sem nú ríður yfir en þar af leiðandi hefur verið mikið rætt við framkvæmdastjóra félaganna um hvernig staðan er á þeim bænum.

Lárus Orri kallar ekki allt ömmu sína og setti inn færslu á Twitter í gær þar sem hann sagðist vera orðinn þreyttur á því að hlusta á framkvæmdastjóranna endalaust í fjölmiðlum. Hann sagði þeim að halda sig fjarri sviðsljósinu og þeir ættu bara að sinna sínu starfi.

Hann líkti þessu við eins og þegar dómarinn verður aðalstjarnan í leiknum en hann sagðist einnig hlakka til að heyra aftur í þjálfurum og leikmönnum liðanna.

Lárus lék 42 leiki með íslenska landsliðinu auk þess sem hann spilaði fyrir Þór, Stoke, WBA og ÍA. Hann þjálfaði síðast Þór en hætti eftir sumarið 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×