Enski boltinn

Aðstoðarteymi Benitez semur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rafa Benitez og Sammy Lee á æfingu hjá Liverpool.
Rafa Benitez og Sammy Lee á æfingu hjá Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Fimm í aðstoðarmannateymi Rafael Benitez, knattspynustjóra Liverpool, hafa gengið frá framlengingu á samningum sínum við félagið, rétt eins og Benitez sjálfur gerði á dögunum.

Aðstoðarknattspyrnustjórinn Sammy Lee og þjálfari aðalliðsins, Mauricio Pellegrino, hafa gert minnst tveggja ára samninga við Liverpool. Xavi Valero markvarðaþjálfari, Paco de Miguel þolþjálfari og Eduardo Macia yfirnjósnari hafa einnig gengið frá sínum samningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×