Spyr ráðherra um uppbyggingu Heimskautsgerðisins á Raufarhöfn Atli Ísleifsson skrifar 18. ágúst 2016 10:26
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, hefur beint fyrirspurn til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um hver afstaða ráðherra sé til áframhaldandi uppbyggingar Heimskautsgerðisins á Raufarhöfn. Heimskautsgerðið er nú hálfbyggt en það rís á ás norðvestan við þorpið og hefur verið í byggingu frá árinu 2004. Steingrímur spyr jafnframt hvort ráðherra, sem fer með málefni ferðamála, muni beita sér fyrir frekari fjárveitingum þannig að unnt verði að ljúka verkinu.Þá spyr þingmaðurinn einnig hver sé afstaða ráðherra til uppbyggingar „nýrra“ áningarstaða fyrir ferðamenn og frekari dreifingu slíkra áfangastaða um landið en nú er. Hugmyndina að Heimskautsgerðinu átti Erlingur Thoroddsen hótelstjóri og fékk hann Hauk Halldórsson listamann til að teikna gerðið. Steinblokkirnar mynda sólúr við nyrstu strendur Íslands og má segja að þær séu í anda Stonehenge í Englandi.Textahöfundurinn landskunni Jónas Friðrik er meðal þeirra sem fylgt hafa verkefninu frá upphafi, en hann sagði frá því í viðtali við fréttastofu fyrr í sumar að um 70 til 80 milljónir króna vantaði upp á að klára verkið. Þó verkinu sé langt frá því lokið þá er Heimskautsgerðið við Raufarhöfn orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna sem leggja leið sína um Melrakkasléttu. Sjá má innslag Kristján Más Unnarssonar fréttamanns frá í júlí í spilaranum að neðan.
Tengdar fréttir Heimskautsgerðið hálfbyggt er orðið glæsilegt mannvirki Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna þótt enn vanti mikið til að ljúka gerð þessa einstaka mannvirkis. 19. júlí 2016 23:30 Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira
Heimskautsgerðið hálfbyggt er orðið glæsilegt mannvirki Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna þótt enn vanti mikið til að ljúka gerð þessa einstaka mannvirkis. 19. júlí 2016 23:30