Bíó og sjónvarp

Einvala lið leikara í fyrstu sápuóperu Íslands sem gerist í rauntíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhannes Haukur, Katla Margrét og Aron Már fara með aðalhlutverk ásamt mörgum gestaleikurum. 
Jóhannes Haukur, Katla Margrét og Aron Már fara með aðalhlutverk ásamt mörgum gestaleikurum. 

Sápan eru nýir íslenskir grín sápuóperu þættir á Stöð 2 þar sem þjóðþekktir Íslendingar mæta í gestahlutverkum og leika á móti aðalpersónum þáttanna.

Leikarar eru meðvitaðir um að þeir séu að leika í sápuþætti þar sem allt er leyfilegt. Í aðalhlutverkum eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Aron Már Ólafsson og Arnar Jónsson.

Katla og Jóhannes Haukur leika par sem aldrei giftu sig en hafa verið saman í 15 ár. Eftir mikla einangrun í kórónuveiru ástandinu hefur Katla gert upp hug sinn. Hún vill skilnað og þau búa í meðalstórri íbúð á höfuðborgarsvæðinu á góðum stað.

Jóhannes leikur mann sem starfar sem endurskoðandi en hefði viljað vinna við eitthvað nær náttúrunni en hafði aldrei kjarkinn til að elta draumana. Katla leikur aftur á móti konu sem starfar sem hárgreiðslukona og hefur ekki getað sinnt vinnunni síðan Covid-19 ástandið skall á, en hefur komið fyrir stól inni í íbúð þar sem hún fær til sín kúnna í tíma og ótíma sem fer ekki vel í eiginmanninn.

Aron Már leikur karakter sem er nýfluttur í blokkina. Myndarlegur, hress og skemmtilegur strákur sem elskar að ferðast og hefur augastað á Kötlu. Karakter Jóhannesar eignast skyndilega fullt af peningum eftir að hann vinnur í lottóinu. Katla fer strax í það að sannfæra hann um að núna sé kominn tími til að gifta sig, bara svo hún geti drepið hann með aðstoð Arons og þau flutt saman til Balí. Áhorfendur Stöðvar 2 geta síðan séð hvort ætlunarverkið takist. 

Skemmtileg áhætta

Þórhallur Gunnarsson framkvæmdastóri Fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone segir að þarna sé gamall draumur að rætast.

„Að vera með leikna sjónvarpsseríu í rauntíma þar sem hægt er tengja samfélagsmál og það sem er í brennidepli hverju sinni við söguþráð þáttanna. Þetta er skemmtileg áhætta en á sama tíma áskorun. Hins vegar er ég sannfærður um að þetta verði frábært sjónvarpsefni enda leikararnir stórkostlegir, fantagóður leikstjóri og framleiðendur meðal þeirra reyndustu á landinu,“ segir Þórhallur.

Baldvin Z, framleiðandi og einn af eigendum Glassriver sem framleiðir seríuna, segir að þau hafi langað að láta covid aðstæðurnar ýta þeim á einhvern stað sem myndi ögra þeim, ferlinu og sköpuninni.

„Við vitum að þetta er mjög mikil áhætta að gera þetta, en útkoman varð þessi sturlaða pæling. Að sýna Covidvænt verkefni með nánast rauntíma söguþræði, sýna á hverjum föstudegi í heilan mánuð á Stöð 2 í formi Soapecom sem er einhverskonar blanda af Sit-Com og Sápu. Serían verður spéspegill á ástandinu og fólkið í landinu mun hafa áhrif á framvindu með því að getað sent inn hugmyndir af sögulínum,“ segir Baldvin en þátturinn verður tekinn upp samdægurs og hann er sendur út.

„Þetta getur ekki klikkað,“ segir Baldvin og hlær en þættirnir fara af stað 8. maí.

Áhorfendur Stöðvar 2 geta haft áhrif á söguþráðinn í hverri viku og senda inn hugmynd að framhaldi næsta þáttar.

Höfundar þáttanna eru þeir Fannar Sveinsson, Baldvin Z og Benedikt Valsson og mun Fannar leikstýra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×