Menning

Skákin á tímum Kóróna-veirunnar: Nær Giri að smita Ding?

Hrafn Jökulsson skrifar
Ding Liren. Hvar eigum við að byrja? Þegar hann settist að tafli eftir tvö töp í röð, tja, þá þurfti það endilega að vera gegn næststigahæsta skákmanni heims. Fabiano Caruana.
Ding Liren. Hvar eigum við að byrja? Þegar hann settist að tafli eftir tvö töp í röð, tja, þá þurfti það endilega að vera gegn næststigahæsta skákmanni heims. Fabiano Caruana.

Ding Liren sýndi stáltaugar þegar hann reis upp úr gröfinni og skellti sjálfum Caruana í þriðju umferð Áskorendamótsins í skák, sem fram fer í Rússlandi þessa daga. Það ætti að vera mál málanna. Er þetta epísk endurkoma meistara sem tapaði fyrstu tveimur skákunum? Tölfræðin segir okkur að Ding Liren tapi næst á vetrarvertíð 2021…

En jafnvel meistararnir eiga erfitt með að einbeita sér að taflinu. Skákmenn eru því vanir að staðan breytist með hverjum leik, en nú breytist heimsmyndin frá einni stundu til annarrar. Og samt skal teflt til þrautar í Katrínarborg um það hver gengur á hólm við Magnus Carlsen í haust.

Ef það tekst á annað borð að ljúka mótinu.

Allir viðburðir eru bannaðir í Rússlandi – nema áskorendamótið í Katrínarborg. Andrúmsloftið á mótsstað, í borginni þar sem bolsevikar slátruðu keisarafjölskyldunni, er þrungið spennu en úrslitin á skákborðinu eru orðin nánast aukaatriði: Tekst kóróna-veirunni að smjúga inn fyrir sótthreinsaðar varnir og eyðileggja einu veisluna sem eftir er?

Ástandið í Rússlandi versnar dag frá degi og viðbúnaður yfirvalda í skötulíki. Hópur rússneskra lækna, vísindamanna og áhrifamanna sendi á föstudag frá sér sannkallað neyðarkall: Áskorun til yfirvalda um að bregðast við áður en það er alltof, alltof seint.

Sporðdrekinn sigraði ljónið

En við vorum að tala um skákina og þriðju umferð áskorendamótsins, vesgú:

Ding Liren 1 - 0 Caruana Fabiano

Giri Anish ½ - ½ Vachier-Lagrave Maxime

Grischuk Alexander ½ - ½ Wang Hao

Alekseenko Kirill ½ - ½ Nepomniachtchi Ian

Ding Liren. Hvar eigum við að byrja? Þegar hann settist að tafli eftir tvö töp í röð, tja, þá þurfti það endilega að vera gegn næststigahæsta skákmanni heims. Fabiano Caruana. Ítalskættaði Bandaríkjamaðurinn sem vann áskorendamótið í Berlín 2018 mjög sannfærandi og gerði svo fjórtán jafntefli við Carlsen í heimsmeistaraeinvígi -- beið lægri hlut í atskákum. Caruana. Hann tapaði síðast skák í ágúst í fyrra. Eftirlæti veðbanka og flestra skákunnenda, enda sérlega háttvís og alþýðlegur ungur maður, bersýnilega með snilligáfu.

Ding var númer tvö í veðbönkunum, en það var náttúrlega áður en hann tapaði í fyrstu OG annarri umferð.

Ding léttur í lund ásamt Hou Yifan, fv. heimsmeistara kvenna sem komin er til Katrínarborgar.

Caruana kom greinilega vel undirbúinn og úðaði út fyrstu sautján leikjunum á leifturhraða, brá sér af troðinni slóð og bauð peð -- var það eitrað eða ekki... Ding Liren hefur stáltaugar og gríðarlegt vinnsluminni. Flestir ofurstórmeistarar hafa sín eigin tölvuver og aðstoðarmenn; Ding var leiddur inn í kynjaskóg úr tölvuveri Caruana og hafði bara hyggjuvitið og stáltaugarnar að styðjast við.

Ding náði að sýna fram á að fína byrjunin hjá Caruana stóðst barasta ekki alla leið og hann gat blásið til sóknar. Caruana lét sig hafa að engjast í vonlausri stöðu langtímum saman og hefur ugglaust vonast eftir kraftaverki.

En sporðdrekinn frá Wenzhou linaði ekki tökin á ljóninu frá Miami. Jú, Caruana hafði kannski ekki tapað síðan í ágúst en þá þurfti hann einmitt að játa sig sigraðan -- gegn Ding.

Lífsdraumur Frakkans

Öðrum skákum lauk með jafntefli. Kirill Alekseenko tefldi ágæta skák við Ian Nepomniachtchi og stóð um tíma betur. Alekseenko, yngstur og stigalægstur, hefur þannig gert tvö jafntefli og tapað einni skák. Viðunandi, en hann verður hvergi í grennd við toppinn.

Ekki heldur Anish Giri sem nú er kominn í sinn huggulega jafnteflisgír eftir tapið í fyrstu umferð. Hann gerði jafntefli við Frakkann Maxime Vachier-Lagrave, sem fær nú þann lífsdraum uppfylltan að komast í tæri við heimsmeistaratitilinn og verður örugglega í toppbaráttunni til síðustu stundar.

Skákunnendur óttast að Giri smiti Ding Liren af jafnteflisveirunni, þegar þeir mætast í fjórðu umferð. Þá hefur Ding hvítt og með sigri myndi hann skrifa nýjan kafla í mjög vænlegri hetjusögu!

En aðdáendur Kínverjans verða að anda í kviðinn: Ding og Giri hafa teflt 24 skákir. Þeir hafa unnið tvær hvor – og tuttugu hefur lokið með jafntefli…

Staðan eftir þrjár umferðir. Mjög spennandi skákir um helgina í beinni útsendingu.

Skák, rétt einsog fótboltaleikur, getur verið æsispennandi þótt (eða vegna þess) að niðurstaðan er jafntefli. Og það er ekki mikið um svokölluð „stórmeistarajafntefli“ nú til dags, en þá er átt við stuttar og andlausar skákir þar sem oftar en ekki er búið að semja um úrslit fyrirfram. Slíkt tíðkast ekki á ofurmótum, og á áskorendamótinu er bannað að semja um jafntefli fyrir 40. leik.

En hversu mikil plága eru nú blessuð jafnteflin? Skoðum fjögur síðustu áskorendamót. Fyrirkomulag hefur verið hið sama síðan í London 2013: Átta keppendur, tvöföld umferð. Það þýðir að 56 skákir samtals eru tefldar á hverju áskorendamóti. 

Hrafn Jökulsson. Vísir fékk hann sérstaklega til að fylgjast með hinu æsispennandi Áskorendamóti sem nú er haldið við afar sérstakar aðstæður í Katrínarborg. 

Og lítum þá á tölfræðina:

London 2013: 25 sigurskákir, 31 jafntefli

Kanty-Mansiysk 2014: 22 sigurskákir, 34 jafntefli

Moskva 2016: 16 sigurskákir, 40 jafntefli

Berlín 2018: 20 sigurskákir, 36 jafntefli

Eftir þrjár umferðir í Katrínarborg eru þegar komnar fimm sigurskákir og aðeins sjö jafntefli. Grischuk hefur gert þrjú af þessum jafnteflum, hann mun sigla lygnan sjó á mótinu en öllum skeinuhættur, enda sporðdreki einsog Ding.

Áskorendamótinu í Rússlandi á að ljúka 3. apríl.  Beinar útsendingar má finna hér.

Enginn veit hver verður krýndur sigurvegari. Eða, sem er áleitnari spurning: Hvort einhver verður krýndur og kórónaður í Katrínarborg…


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×