Fótbolti

Víðir lærði af landsliðsfólkinu og nýtir sér það í dag

Sindri Sverrisson skrifar
Víðir Reynisson í léttri glímu við Þorgrím Þráinsson á landsliðsæfingu í Rússlandi þar sem HM fór fram 2018.
Víðir Reynisson í léttri glímu við Þorgrím Þráinsson á landsliðsæfingu í Rússlandi þar sem HM fór fram 2018. VÍSIR/VILHELM

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist hafa lært mikið af því að fylgja íslensku landsliðunum í fótbolta í ferðalögum sem öryggisstjóri KSÍ.

Víðir hefur farið á stórmót síðustu ára, EM karla og kvenna og HM karla í Rússlandi, og notið þess að umgangast fótboltahetjur landsins. Öryggisstjórinn lét líka til sín taka þegar stilla þurfti til friðar í vináttulandsleik Frakklands og Íslands, þar sem Paul Pogba og fleiri urðu mjög æstir eftir að Rúnar Már Sigurjónsson tæklaði Kylian Mbappé.

„Þetta er náttúrulega búið að vera ævintýri og ótrúleg forréttindi að taka þátt í þessu. Að kynnast öllu þessu fólki okkar sem er í kringum íþróttirnar, bæði karla- og kvennamegin í fótboltanum. Þetta hefur kennt manni ótrúlega margt. Maður hefur lært mjög mikið bæði af leikmönnum og þjálfurum. Ég hef nefnt þessi dæmi eins og Frey og Heimi, Lars og Erik, þessa þjálfara sem maður hefur mest unnið með, og svo leikmenn eins og Aron Einar og Söru. Það eru svo margir leiðtogar þarna,“ segir Víðir í Sportinu í dag, og bendir á að leiðtogarnir séu ekki endilega þeir leikmenn sem almenningur haldi að séu mestu leiðtogarnir:

Víðir Reynisson var öryggisstjóri KSÍ en hér sýnir hann lipra takta á landsliðsæfingu í Rússlandi.VÍSIR/VILHELM

Ólafur Ingi leysti málin með húmor sínum og nærveru

„Það eru oft ákveðnir leikmenn í „frontinum“ en svo er ekki síður gaman að kynnast þessum leikmönnum sem eru ekki endilega alltaf í viðtölunum en eru samt ótrúlegir leiðtogar og vigta svakalega mikið inn í hópinn þó að þeir séu ekki áberandi. Þeir eru ómissandi púsl í þessu púsluspili sem þjálfararnir eru með. Þetta eru ekki endilega leikmenn sem eru að spila mikið. Ólafur Ingi Skúlason til dæmis. Hann var í kringum landsliðið í gríðarlega mörg ár en er ekki með neitt brjálæðislega mikinn fjölda landsleikja, en alveg ótrúlega mikilvægur hlekkur í hópnum. Hann var gaurinn sem að leysti mál og braut upp með húmor sínum og nærveru. Ég gæti nefnt fullt af svona dæmum,“ segir Víðir, sem vakið hefur verðskuldaða athygli sem einn af þríeykinu á daglegum blaðamannafundum vegna kórónuveirunnar.

„Þetta kenndi mér, sem ég nota mjög mikið í mínu starfi, hvað hver einstaklingur í teyminu skiptir miklu máli. Sá sem að mætir á blaðamannafundi er ekki endilega sá mikilvægasti. Það er fullt af fólki sem ég er að vinna með sem er að vinna alveg ótrúlega flotta vinnu sem sést eiginlega aldrei, af því að hún er hluti af einhverju uppspili í þessu verkefni.“

Afar ólíklegt er að Víðir snúi aftur í fullt starf hjá KSÍ, að sögn Klöru Bjartmarz framkvæmdastjóra KSÍ. Hún sagði við Fótbolta.net í gær að vonandi yrði Víðir þó í einhverju hlutverki hjá sambandinu áfram.

Klippa: Sportið í dag - Landsliðsfólkið hefur kennt Víði

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Mestu áhyggjur þríeykisins að þurfa að byrja upp á nýtt

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að helstu áhyggjur hans, Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis og Ölmu D. Möller landlæknis, sé það sem við tekur þegar byrjað verður á afléttingu samfélagslegra takmarkana 4. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×