Barcelona náði bara einu stigi gegn Eibar á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eibar fagnar markinu á Nou Camp sem skilaði liðinu einu stigi.
Eibar fagnar markinu á Nou Camp sem skilaði liðinu einu stigi. Alex Caparros/Getty Images

Barcelona náði einungis í eitt stig á heimavelli gegn Eibar í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en lokatölurnar urðu 1-1.

Martin Braithwaite klúðraði vítaspyrnu á 9. mínútu og mark var einnig dæmt af Dananum á 25. mínútu.

Kike kom Eibar yfir á 57. mínútu en Ousmane Dembele bjargaði stigi fyrir Barcelona á 67. mínútu. Lokatölur 1-1.

Börsungar eru í sjötta sætinu með 25 stig en Eibar er í fjórtánda sætinu með sextán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira