Menning

RAX Augnablik: „Heyrði byssukúlu smella í steini fyrir aftan“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Halastjarnan Hale-Bopp varð til þess að margir héldu að draugar eða geimverur væru þarna á ferðinni.
Halastjarnan Hale-Bopp varð til þess að margir héldu að draugar eða geimverur væru þarna á ferðinni. RAX

Árið 1997 ferðaðist Ragnar Axelsson um Austurströnd Grænlands og myndaði þar náttúruna, dýrin og mannlífið.

„Því sum þessara þorpa munu og hafa lagst af, þegar fólki fækkar og flyst inn í stærri bæina. Þannig að ég er að „documentera“ eitthvað sem verður ekki gert aftur,“ útskýrir RAX. Á Grænlandi myndaði hann meðal annars Hale-Bopp halastjörnuna frægu.

„Sem var ein skærasta halastjarna sem hefur sést frá jörðinni. Ég var að mynda um nóttina, það voru falleg norðurljós og þessa sömu nótt er einhver trúflokkur í Ameríku sem að fyrirfer sér vegna þess að það heldur að það séu geimverur á bak við stjörnuna að sækja sig.“

Í felum í tuttugu mínútur

RAX var svo að mynda í litlu þorpi ásamt vini sínum þegar þeir komust í hann krappan um miðja nótt.

„Við erum að kalla á milli hvernig maður eigi að lýsa myndina, hvað lengi. Það var svo dimmt, það var bara svartamyrkur, tvö um nóttina. Himininn eins og nálapúði og norðurljósin dansa á himnum.“

Þegar þeir eru úti að mynda litadýrðina á fögrum himninum yfir Grænlandi, verður íbúi í nærliggjandi húsi var við þá.

„Allt í einu kemur maður út í glugga á efri hæðinni, ber að ofan og öskrar út í loftið. Hann er með riffil og skýtur út í loftið og maður heyrði í byssukúlu smella í steini fyrir aftan sig. Maður faldi sig í tuttugu mínútur,“ segir RAX um viðbrögðin sín þessa nótt.

„Ég velti fyrir mér hvort hann hafi hreinlega haldið að hann hafi séð draug.“

RAX átti þó eftir að kynnast þessum manni betur í dagsbirtunni. Hægt er að heyra söguna í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Af draugum og halastjörnum er tæpar fjórar mínútur.

Klippa: RAX Augnablik - Af draugum og halastjörnum

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2 Maraþon. Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

RAX Augnablik: „Það var eitthvað mennskt við Qerndu“

„Ole kenndi mér það að þegar ég fer með veiðimönnum út á hafísinn, að passa mig hvað ég segi. Þegar þú færð svona frá reynsluboltum þá virðir maður það, segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson. Í nýjasta þættinum af RAX augnablik, segir hann söguna um einstakt samband grænlenska veiðimannsins Ole og hundsins Qerndu.

RAX Augnablik: „Ísbjörninn er svo klókur og snöggur að gera árás“

Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í þegar hann fylgdi eftir veiðimönnum í leit að fjórum ísbjörnum úti á hafís þegar jökulstormur skall á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×