Íslenski boltinn

KR gæti leitað til Al­þjóða í­þrótta­dóm­stólsins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
KR-ingar eru ekki sáttir með hvernig Íslandsmótið í knattspyrnu endaði.
KR-ingar eru ekki sáttir með hvernig Íslandsmótið í knattspyrnu endaði. Vísir/Bára

Formaður knattspyrnudeildar KR segir félagið hafa tæmt allar leiðir innanlands og því sé eina sem félagið geti gert að leita til Alþjóða íþróttadómstólsins.

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ræddi mál félagsins í hlaðvarpsþættinum Mín Skoðun á Sport-FM. KR-ingar eru ekki á allt sáttir með hvernig Íslandsmótinu hér á landi var slitið vegna kórónufaraldursins.

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR.Stöð 2/Einar Árnason

Þeir hafa nú leitað allra þeirra leiða sem hægt er hér á landi og því lítið annað í boði en að leita til Alþjóða íþróttadómstólsins.

„Við erum búin að tæma allar leiðir á Íslandi, eina leiðin sem við eigum eftir er að leita til Alþjóða íþróttadómstólsins. Mér finnst mjög líklegt að við gerum það en það liggur ekki enn fyrir endanleg ákvörðunar stjórnar. Ég hef rætt við einstaka stjórnarmenn og tel meiri líkur en minni að við látum reyna á þetta,“ sagði Páll í þættinum.

„Við höfum ekki endalausan tíma til að bregðast við og þurfum að gera það innan þriggja vikna frá því að dómur fellur,“ bætti hann við.

Páll, sem er lögfræðingur að mennt, tók einnig fram að hann beri virðingu fyrir niðurstöðum dómstóla. Það sé hins vegar réttur KR að leita út fyrir landsteinana með málið til þess að fá í það endanlega niðurstöðu.

Aðspurður út í samskipti Fram og Knattspyrnusambands Íslands í gær sagði Páll töluvert til í málflutningi Framara.

„Fannst margt til í þessu hjá Fram. Það þarf einhverjar breyting­ar á þessu dómstólakerfi. Það er alveg rétt sem þeir segja í sinni yfirlýsingu að það er eitthvað að þegar menn geta ekki fengið efnislega niðurstöðu í ágreiningi félaga við stjórn.“

„Eins og ég hef sagt áður finnst mér ekki eðlileg afstaða stjórnar að fara fram á frávísun hjá áfrýjunardómstóli.“

Telur að umhverfi dómstóla verði til umfjöllunar á komandi ársþingi KSÍ

„Ég tel það nauðsynlegt að endurskoða þetta dómstóla umhverfi sem KSÍ býður upp á. Það er ljóst að það arf að eiga sér stað einhver umræða um það á þessu þingi og reikna ég með að KSÍ muni eiga frumkvæðið að slíkri endurskoðun. Þeir þurfa að geta tekið á alvöru málum líka og þessi afgreiðsla er búin að vera algerlega fráleit, burt séð frá efnislegri niðurstöðu.“

„Þessi hringlandi háttur í kringum þetta og kröfur sambandsins um frávísun. Auðvitað þarf að fjalla efnislega um mál og fá skjóta afgreiðslu. Þessi mál hafa farið fram og til baka í allt að þrjá mánuði frá því ákvörðun KSÍ lá líklega fyrir. Þetta er ekki nægilega gott og það þarf að bæta úr þessu,“ sagði Páll að endingu.


Tengdar fréttir

KR skoðar sín mál en Fram virðist ekki ætla að halda á­fram

KR-ingar ætla að skoða sín mál og hafa ekki tekið ákvörðun með framhaldið eftir að áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti úrskurð aga- og úrskurðarnefndar. Þá var máli Fram vísað frá og virðist sem Fram ætli ekki lengra með málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×