Ronaldo klúðraði víti og allt jafnt í Tórínó

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ronado eftir að hafa klúðrað vítaspyrnunni.
Ronado eftir að hafa klúðrað vítaspyrnunni. Jonathan Moscrop/Getty Images

Juventus og Atalanta mættust í einum af stórleikjum ítalska boltans í kvöld. Mikið fjör var í leiknum sem lauk með 1-1 jafntefli.

Eftir tæplega hálftíma var það Federico Chiesa sem kom Juventus yfir og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Gestirnir frá Atalanta, sem gustað hefur um að undanförnu, jöfnuðu á 57. mínútu. Markið skoraði Remo Freuler.

Einungis fjórum mínútum síðar fengu heimamenn í Juve þó vítaspyrnu en Pierluigi Gollini sá við honum. Lokatölur 1-1.

Juventus er í þriðja sætinu með 24 stig, þremur stigum á eftir toppliði AC Milan, sem á þó leik til góða. Atalanta er í áttunda sætinu með átján stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira