Firmino hetjan í stór­leiknum og Haller skoraði með hjól­hesta­spyrnu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Roberto Firmino fagnar sigurmarkinu.
Roberto Firmino fagnar sigurmarkinu. Peter Powell/Getty

Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Tottenham er liðin mættust í stórleik umferðarinnar í enska boltanum. Liðin voru jöfn á toppi deildarinnar fyrir leik kvöldsins.

Liverpool réði ferðinni í fyrri hálfleik og rúmlega það. Þeir komust verðskuldað yfir á 25. mínútu er Mohamed Salah skoraði. Skot hans fór í varnarmann Tottenham og sveif í stöng og inn.

Úr fyrsta skoti Tottenham í leiknum, jöfnuðu þeir metin. Giovani Lo Celso stakk boltanum inn fyrir á Heung-Min Son sem skoraði. Rangstöðulykt var af markinu en eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt gott og til.

Liverpool reyndi hvað þeir gátu til að komast aftur fyrir hlé en allt kom fyrir ekki og 1-1 í leikhléi. Bæði lið fengu sín færi í síðari hálfleik. Þau skutu meðal annars bæði í markstangirnar; Salah í slá og Bergwijn í stöng.

Sigurmarkið kom hins vegar á 90. mínútu. Hornspyrna Andrew Robertson fór beint á ennið á Roberto Firmino sem stangaði boltann í netið. Lokatölur 2-1.

Liverpool er með 28 stig á toppi deildarinnar, Tottenham er í því öðru með 25 stig en Southampton og Leicester eru í þriðja og fjórða sætinu með 24 stig.

Fulham og Brighton gerðu markalaust jafntefli. Fulham er í sautjánda sætinu með níu stig en Brighton er sæti ofar með tveimur stigum meira.

West Ham og Crystal Palace gerðu einnig jafntefli. Christian Benteke kom Palace yfir á 34. mínútu en Sebastian Haller jafnaði með stórkostlegu hjólhestuspyrnumarki á 55. mínútu.

Ekki skánaði ástandið fyrir Palace er markaskorarinn Christian Benteke fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 70. mínútu. West Ham er í sjöunda sætinu með 21 stig en Palace í tólfta sætinu með átján.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira