City tapaði stigum gegn nýliðunum á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kevin de Bruyne reynir að koma boltanum framhjá varnarvegg WBA.
Kevin de Bruyne reynir að koma boltanum framhjá varnarvegg WBA. Michael Regan/Getty Images

West Brom, sem hefur aðeins unnið einn leik í ensku úrvalsdeildinni í vetur, sótti stig á Etihad leikvanginn í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við Manchester City.

Flestir bjuggu við stórsigri City í kvöld en þeir gerðu markalaust jafntefli við Man. United í slagnum um Manchester um liðna helgi.

Ilkay Gündogan kom City yfir eftir hálftíma leik. Þeir bláklæddu höfðu þó haldið boltanum lengi innan liðsins áður en Raheem Sterling kom boltanum á þann þýska sem skoraði.

Gestirnir náðu þó að jafna fyrir hlé og það gerði Semi Ajayi. Eftir aukaspyrnu og mikinn darraðadans, barst boltinn til varnarmannsins sem skaut í varnarmann City og í netið.

City reyndi og reyndi í síðari hálfleik að troða inn sigurmarkinu en allt kom fyrir ekki. Sam Johnstone varði og varði í marki WBA. Lokatölur 1-1 og fóru nýliðarnir þakklátir með eitt stig af Etihad.

City er nú í 6. sætinu með tuttugu stig, fimm stigum á eftir toppliðunum Tottenham og Liverpool. WBA er með sjö stig í næst neðsta sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira