Menning

Nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann sækir hart að Arnaldi

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur hefur einokað toppsætið á bóksölulistum öll undanfarin ár en nú er mættur til leiks sterkur áskorandi sem gerir sig líklegan til að velta kóngi úr sessi; Ólafur Jóhann Ólafsson.
Arnaldur hefur einokað toppsætið á bóksölulistum öll undanfarin ár en nú er mættur til leiks sterkur áskorandi sem gerir sig líklegan til að velta kóngi úr sessi; Ólafur Jóhann Ólafsson.

Arnaldur heldur fyrsta sæti Bóksölulistans þessa síðustu viku nóvember en mjótt er á mununum á milli hans og Ólafs Jóhanns, munurinn innan við 3 prósent.

Vísir heldur áfram að fylgjast með gangi mála í bóksölunni en fyrsti bóksölulisti Fibut birtist fyrir viku og hér kemur sá næsti en listinn er unninn út frá sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson. Þessi listi er listinn eins og þar stendur, eða listarnir sem höfundar og útgefendur bíða eftir með öndina í hálsinum. Þessir listar sem nú birtast taka til bóksölu dagana 23.-29. nóvember 2020.

„Spennusagnamaskínur“ og „fagurrithendur“

Bóksala er með miklum ágætum nú. Aðstæður virðast hagstæðar útgáfubransanum. Vísir hefur heyrt í mörgum útgefendum að undanförnu og þeir hafa aldrei séð eins mikla bóksölu og nú er. Svo virðist sem bókakaupendur séu fyrr á ferðinni en áður, í jólabókaflóðinu. 

Svo er spurning hvort salan heldur dampi en á mörgum undanförnum árum hefur Þorláksmessa verið langsöluhæsti dagur ársins og hefur hún skipt fáránlega miklu máli hlutfallslega sé litið til sölu bóka á ársgrundvelli. En að listunum.

„Þegar litið er til íslenska skáldverkalistans, þá líkist hann svolítið fléttulista stjórnmálaflokkanna. Nema hvað, í stað þess að kynin skipti sér á milli sæta þá skiptast þar á hefðbundin skáldverk við glæpasögur og framtíðartrylla,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut en hún er helsti sérfræðingur landsins sviði bóksölu og jólabókaflóða.

Eins og staðan er í dag stefnir í að lið þeirra sem fást við ritun fagurbókmennta að muni veita spennusagnahöfundum harða keppni.

„Í fyrstu átta sætunum eru til dæmis annars vegar spennusagnamaskínurnar Arnaldur, Yrsa, Ragnar og Stefán Máni sem skiptast á sætum við fagurrithendur Ólafs Jóhanns, Kristínu Marju, Jóns Kalman og Auðar Övu. Þau eru sem sagt öll komin í merkta landsliðstreyju þjóðarrithöfundaliðs. Það kemur svo í ljós á næstu vikum, hverjir fleiri veljast í liðið í ár.“

Katrín Júlíusdóttir að gera gott mót

Ef farið er í sauma listanna kemur í ljós að aðeins einn nýliði, með sína fyrstu bók, nær inn á skáldverkalistann. Það er Katrín Júlíusdóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, með spennusöguna Sykur sem situr í sextánda sæti listans.

Þó Katrín Júlíusdóttir hafi marga fjöruna sopið sem stjórnmálamaður er hún nýliði í þessu ati sem bókaútgáfan er. En hún mætir sterk til leiks.Visir/Baldur

Bjarni Fritzson heldur stöðu sinni í fyrsta sæti barna- og ungmennabókalistans með þriðju bókina um Orra óstöðvandi. Það er hins vegar nýliðinn Sólborg Guðbrandsdóttir sem heldur áfram að klifra upp listann með bók sína, Fávita og er nú komin í annað sæti listans og 7. sæti stóra topplistans. Það gerir hana að söluhæsta nýliða vikunnar svo hún má gjarnan gefa sér gott klapp á bakið.

Líkt og flest undanfarin ár, þá er Útkallsbók ársins, Á ögurstundu, í efsta sæti fræði- og handbókalistans. Bækurnar á þessum lista eru skemmtilega fjölbreyttar, í öðru sæti eru nýliðarnir Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld með UNU prjónabók. Í þriðja sæti er svo Spænska veikin hans Gunnars Þórs Bjarnasonar sem mörgum er kunnur fyrir bækurnar Upp með fánann og Þegar siðmenningin fór fjandans til.

Hnetusmjör og Gísli Rúnar í góðum gír

Bryndís sagði fyrir viku að Gervilimrur Gísla Rúnars ættu örugglega eftir að koma á óvart í sölu. Bryndís veit hvað hún syngur því Gervilimrurnar sitja áfram á toppi ljóðabókalistans.

Á ljóðabókalistanum er Gísli heitinn Rúnar langefstur og á ævisagnalistanum er Herra Hnetusmjör á toppnum.

„Já, með margfalt meiri sölu en bækurnar sem á eftir fylgja og reyndar svo mikla sölu að hún næði inn á topp 10 skáldverkalistann ef hún væri flokkuð þar. Gísli Rúnar fær örugglega breitt bros frá fjölmörgum lesendum á komandi vikum.“

Herra Hnetusmjör situr aðra vikuna í röð í efsta sæti ævisagnalistans og einhvern veginn mætti segja mér að nokkuð kröftug kynslóð ævisagnalesenda sé að stíga fram. „Meðalaldur lesenda Herra Hnetusjörs og bókarinnar í öðru sæti listans, Dóttur – um Katrínu Tönju Davíðsdóttur, er örugglega töluvert lægri en vanalegt er í þessum flokki,“ segir Bryndís.

En listana sjálfa má svo sjá hér neðar.


Topplistinn 23.-29. nóvember 2020

  1.  Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  5. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  6. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  7. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  8. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  9. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  10. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  11. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  12. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  13. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  14. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  15. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  16. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  17. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  18. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  19. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  20. Verstu kennarar í heimi - David Walliams

Íslensk skáldverk

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  6. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  7. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  8. Dauðabókin - Stefán Máni
  9. Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir
  10. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  11. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  12. 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
  13. Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
  14. Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
  15. Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
  16. Sykur - Katrín Júlíusdóttir
  17. Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir
  18. Ein - Ásdís Halla Bragadóttir
  19. Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
  20. Truflunin - Steinar Bragi

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  2. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  3. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  4. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  5. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  6. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  7. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  8. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  9. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  10. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  11. Ísskrímslið - David Walliams
  12. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
  13. Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  14. Jólasyrpa - Walt Disney
  15. Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
  16. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
  17. Jól í Múmíndal - Tove Jansson
  18. Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir
  19. Lára lærir að hjóla - Birgitta Haukdal
  20. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal

Fræði og almennt efni

  1. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  2. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  3. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  4. Kökur - Linda Ben
  5. Skipulag - Sólrún Diego
  6. Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
  7. Ketó - Hanna Þóra Helgadóttir
  8. Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
  9. Prjónað af ást - Lene Holme Sansøe
  10. Fimmaurabrandararnir 2 -
  11. Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
  12. Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
  13. Bakað með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgsdóttir
  14. Samskipti - Pálmar Ragnarsson
  15. Draumaland : Frá fæðingu til sex ára aldurs - Arna Skúladóttir
  16. Prjónað á mig og mína - Lene Holme Sansøe
  17. Tíminn minn 2021 - Björg Þórhallsdóttir
  18. Hrein karfa - Kjartan Atli Kjartansson
  19. Spegill fyrir skuggabaldur : Atvinnubann og misbeiting valds - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
  20. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir

Þýdd skáldverk

  1. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  2. Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
  3. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  4. Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
  5. Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark
  6. Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
  7. Menntuð - Tara Westover
  8. Ókindin og Bethany - Jack Meggitt-Phillips
  9. Þorpið - Camilla Sten
  10. Sögur frá Sovétríkjunum - Ýmsir

Ljóð og limrur

  1. Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
  2. 140 vísnagátur - Páll Jónasson
  3. Látra-Björg - Helgi Jónsson
  4. Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
  5. Þvottadagar - Jónas Reynir Gunnarsson
  6. Þagnarbindindi - Halla Þórlaug Óskarsdóttir
  7. Urð - Hjördís Kvaran Einarsdóttir
  8. Brjálsemissteinninn brottnuminn - Alejandra Pizarnik
  9. Árhringur - Björg Björnsdóttir
  10. Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir

Ævisögur

  1. Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
  2. Dóttir - leið mín til tveggja heimsmeistaratitla - Katrín Tanja Davíðsdóttir og Rory McKiernan
  3. Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  4. Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
  5. Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
  6. Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
  7. Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
  8. Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
  9. Jóhannes Einarsson - minningar - Jakob F. Ásgeirsson
  10. Fæddur til að fækka tárum - Káinn - Jón Hjaltason

Uppsafnað frá áramótum

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  3. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  4. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  5. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  6. Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
  7. Vegahandbókin - Ýmsir
  8. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  9. Fórnarlamb 2117 - Jussi Adler Olsen
  10. Verstu kennarar í heimi - David Walliams





Fleiri fréttir

Sjá meira


×