Fótbolti

Hefur góða til­finningu fyrir leiknum gegn Ung­verjum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hamrén fagnar eftir sigurinn á Rúmeníu. Vonandi næst svipuð mynd á fimmtudaginn kemur.
Hamrén fagnar eftir sigurinn á Rúmeníu. Vonandi næst svipuð mynd á fimmtudaginn kemur. Vísir/Hulda Margrét

Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands, ræddi við Henry Birgi Gunnarsson í dag fyrir leik Ísalnds og Ungverjalands sem fram fer á fimmtudag. Er leikurinn hreinn úrslitaleikur um sæti á Evrópumótinu sem fram fer næsta sumar. Liðið sem vinnur á fimmtudaginn fer á EM og verður með heimsmeisturum Frakklands, Evrópumeisturum Portúgals og Þjóðverjum í riðli.

Hamrén segist hafa góða tilfinningu fyrir leiknum og telur liðið vel undirbúið þó það hafi ekki náð að æfa mikið saman fyrir leik.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan. Það er á ensku og ótextað.

Varðandi undirbúning liðsins

„Miðað við að leikurinn er á fimmtudag hefur undirbúningurinn verið nokkuð skrítinn, en það er eins og það er. Við æfðum í gær með aðeins tíu leikmenn, aðrir fóru í endurhæfingu. Í dag voru allir leikmennirnir mættir og við gátum farið yfir þá taktík sem við vildum fara yfir. Síðan er æfing á morgun á vellinum. Sem þjálfari viltu auðvitað meiri tíma til að undirbúa þig en ég er ánægður með það sem við höfum gert. Við höfum líka undirbúið okkur í gegnum fundi, horft mikið á ungverska liðið svo ég er með ágæta tilfinningu fyrir þessu,“ sagði Hamrén um undirbúning liðsins fyrir leikinn mikilvæga.

Staðan á leikmönnum liðsins?

„Nei ekkert svoleiðis,“ sagði Hamrén aðspurður hvort það væru nýjar fréttir af meiðslum leikmönnum.

„Þegar þú ert með leikmenn sem eru að spila mikið þá er alltaf eitthvað smotterí hér og þar en ekkert sem veldur okkur vandræðum að svo stöddu. Það eina sem hefur verið neikvætt fyrir okkur er Arnór Ingvi [Traustason en hann getur ekki tekið þátt í leiknum].“

Gerir regluverkið í kringum kórónufaraldurinn undirbúninginn flóknari?

„Get ekki sagt það. Leikmennirnir eru vanir þessu hjá félagsliðum sínum og við erum orðnir vanir þessu, þetta er ekki í fyrsta skipti. Þetta er eins og það er, við getum ekkert gert til að breyta þessu. Reynum að einbeita okkur að hlutum sem við getum haft áhrif á. Einbeitum okkur að leiknum á fimmtudag núna og að honum loknum þá færum við okkur yfir í næsta leik. Held að leikmennirnir séu góðir í þessu svo nei það gerir ekki undirbúninginn flóknari,“ sagði landsliðsþjálfarinn um áhrif kórónufaraldursins á undirbúning íslenska liðsins.

Eru einhverjar breytingar á undirbúningi fyrir leikinn vegna mikilvægi hans?

„Við erum ekki að breyta neinu. Breytingin frá október er sú að við erum að spila á útivelli, þetta eru mikil ferðalög og það er mikil áskorun. Þú þarft að hafa gott starfsfólk sem sér um hlutina því það er erfitt að ferðast til fjögurra landa í röð. Starfsfólkið er með allt á hreinu og sér um allt sem þarf að sjá um, þannig geta leikmennirnir einbeitt sér að því sem þeir þurfa að gera.“

„Ég er mjög sáttur með allt til þessa,“ sagði Hamrén að lokum. Nánar verður rædd við Hamrén á Vísi á morgun.

Klippa: Hefur góða tilfinningu fyrir leikinn gegn Ungverjum

Leikur Ungverjalands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19.45 en upphitun hefst klukkan 18.45. Áskrift er hægt að kaupa hér en einnig verður í boði að kaupa stakan viðburð á myndlyklum Vodafone og Símans á kr. 990, sem og í vefsjónvarpi Stöðvar 2.


Tengdar fréttir

Segir markvörð Ungverja í heimsklassa

Gunnleifur Gunnleifsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, hrósar lykilmanni Ungverja í hástert í viðtali fyrir úrslitaleik Ungverjalands og Íslands um sæti á EM í fótbolta.

„Best að halda öllum öruggum“

Arnór Ingvi Traustason segir það hundfúlt en rétta ákvörðun að hann skyldi vera tekinn út úr íslenska landsliðshópnum sem mætir Ungverjalandi á fimmtudag í úrslitaleik um sæti á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×