Vandræðalaust hjá Tottenham og Kane skoraði 200. markið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bale, Kane og Sissoko fagna í kvöld.
Bale, Kane og Sissoko fagna í kvöld. Alex Nicodim/MB Media/Getty Images

Tottenham lenti ekki í miklum vandræðum með Ludogorets Razgrad er liðin mættust í Búlgaríu í kvöld. Lokatölur 3-1.

Harry Kane kom Tottenham yfir á 13. mínútu með skalla eftir hornspyrnu en þetta var 200. mark Kane fyrir Tottenham.

Á 33. mínútu tvöfaldaði Lucas Moura forystuna með laglegu spili og voru heimamenn heillum horfnir. Ef miðað var við fyrri hálfleikinn bjuggust flestir við stórsigri Tottenham.

Heimamenn minnkuðu þó muninn á 50. mínútu með marki frá Claudio Keseru en Giovani Lo Celso kom Tottenham aftur í þægilega forystu á 62. mínútu. Heung Min Son lagði upp markið eftir að hafa verið á vellinum í fimmtán sekúndur.

Antwerp og Tottenham eru með sex stig, LASK þrjú og Ludogorets núll stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira