Thiago Alcântara, nýjasta stórstjarna Englandsmeistara Liverpool er einn þeirra sem hefur greinst með kórónuveiruna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Liverpool festi kaup á hinum 29 ára gamla Spánverja í sumar en hann kom frá Evrópumeisturum Bayern München. Thiago kom af bekknum í 2-0 sigri Liverpool á Chelsea í 2. umferð úrvalsdeildarinnar en var ekki í leikmannahópi liðsins gegn bæði Lincoln City í deildarbikarnum né gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Nú hefur fengið staðfest að miðjumaðurinn knái er með kórónuveiruna og mun því þurfa að fara í einangrun. Töluvert er af kórónusmitum í ensku úrvalsdeildinni og er David Moyes - þjálfari West Ham United - í einangrun þessa dagana eftir að hafa greinst með Covid-19.
Thiago Alcantara has tested positive for COVID-19 and is currently self-isolating according to the necessary guidelines.
— Liverpool FC (@LFC) September 29, 2020
The club has, and will continue to follow, all protocols relating to COVID-19 and Thiago will remain in self-isolation for the required period of time.
Þá fékk Paul Pogba, franski miðvallarleikmaður Manchester United, einnig veiruna í sumar. Hann jafnaði sig þó fljótt og hefur byrjað báða leiki Man Utd í ensku úrvalsdeildinni til þessa.
Ljóst er að Thiago missir allavega af leikjum Liverpool gegn Aston Villa í úrvalsdeildinni sem og gegn Arsenal í deildarbikarnum.
Englandsmeistararnir hafa byrjað tímabilið krafti og hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa í deildinni.