Bam­ford hetjan á 88. mínútu í Jór­víkurs­lagnum

Bamford fagnar sigurmarkinu.
Bamford fagnar sigurmarkinu. vísir/getty

Það stefndi allt í markalaust jafntefli í baráttunni um Jórvíkurskír, á milli Sheffield United og Leeds, en önnur varð niðurstaðan.

Staðan var markalaus og þó að gestirnir hafi frá Leeds hafi verið meira með boltann og átt fleiri skot komst þeim ekki að skora í fyrri hálfleik.

Fimm manna varnarlína Sheffield stóð þétt en það voru komnar 88 mínútur á klukkuna er Patrick Bamford skoraði fyrsta og eina mark leiksins.

Jack Harrison gaf þá frábæra fyrirgjöf fyrir markið og þar var Bamford réttur maður á réttum stað. Lokatölur 0-1.

Leeds er því með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina en spútniklið síðustu leiktíðar, Sheffield, er á botninum án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira