Erlent

Póstmeistari Trump sagður hafa brotið kosningalög

Kjartan Kjartansson skrifar
Louis DeJoy, póstmeistari Bandaríkjanna, var umsvifamikill í fjáröflun fyrir repúblikana í Norður-Karólínu. Fyrrverandi starfsmenn segja að þrýst hafi verið á þá að gefa í kosningasjóði en þeim síðan verið endurgreidd framlögin í formi bónusgreiðslna. Slíkt er brot á alríkis- og ríkislögum.
Louis DeJoy, póstmeistari Bandaríkjanna, var umsvifamikill í fjáröflun fyrir repúblikana í Norður-Karólínu. Fyrrverandi starfsmenn segja að þrýst hafi verið á þá að gefa í kosningasjóði en þeim síðan verið endurgreidd framlögin í formi bónusgreiðslna. Slíkt er brot á alríkis- og ríkislögum. Vísir/EPA

Fyrrverandi starfsmenn forstjóra bandaríska póstsins í Norður-Karólínu segja að þrýst hafi verið á þá að leggja fé í kosningasjóði frambjóðenda Repúblikanaflokksins sem honum hugnaðist og þeim hafi síðan verið greiddur kostnaðurinn. Eigi frásagnir þeirra við rök að styðjast virðist póstmeistarinn hafa brotið lög um fjármál stjórnmálaframboða.

Louis DeJoy, póstmeistari Bandaríkjanna, hefur legið undir þungri gagnrýni vegna niðurskurðaraðgerða sem hann greip til til og koma til framkvæmda á sama tíma og mörg ríki reiða sig í auknum mæli á póstatkvæði í forseta- og þingkosningum í kórónuveiruheimsfaraldri í haust.

Donald Trump forseti hefur ítrekað lýst sig andsnúinn póstatkvæðum og sagt opinskátt að hann vilji ekki að pósturinn fái frekari fjárveitingar til að koma í veg fyrir að fleiri kjósi í gegnum bréflega. Ásakanir hafa því verið á lofti um að DeJoy gangi erinda Trump í að brjóta niður póstþjónustuna til þess leggja stein í götu póstatkvæða, ekki síst eftir að upplýst var að pósturinn hefði varað ríki við því að ekki væri hægt að tryggja að öll atkvæði skiluðu sér í tæka tíð í sumar.

Létu fé af hendi rakna en fengu bónusa á móti

DeJoy hafði enga reynslu af póstþjónustunni þegar Trump tilnefndi hann og skipaði sem æðsta yfirmann hennar. Hann var aftur á móti fjárhagslegur bakhjarl Trump og Repúblikanaflokksins til margra ára.

Washington Post segir að svo virðist sem að DeJoy hafi orðið áhrifamikill fjáraflari flokksins í Norður-Karólínu með vafasömum aðferðum. Fyrrverandi starfsmenn New Breed Logistics, fyrirtækis hans þar, segja blaðinu að þeir hafi verið beittir þrýstingi til að láta fé af hendi rakna til frambjóðenda repúblikana.

DeJoy eða aðstoðarmenn hans hafi þannig hvatt starfsmennina til þess að skrifa ávísanir og mæta á fjáröflunarviðburði á sveitasetri hans við Greensboro fyrir frambjóðenda repúblikana til Bandaríkjaþings og forseta.

Tveir starfsmenn sem þekktu til fjármála og launavinnslu fyrirtækisins fullyrða að DeJoy hafi látið greiðar starfsmönnunum uppbótargreiðslur til móts við framlög þeirra til frambjóðendanna.

Bannað er samkvæmt alríkislögum og lögum í Norður-Karólínu að endurgreiða fólki fyrir kosningaframlög þar sem það gerði fjárhagslegum bakhjörlum kleift að fara í kringum lög sem takmarka hversu mikið hver og einn má gefa til stjórnmálaframboða og dylur uppruna framlaga.

Bandaríska póstþjónustan hefur verið í brennidepli í aðdraganda kosninganna. Trump forseti hefur lagst alfarið gegn því að fleirum verði gert kleift að kjósa með póstatkvæði og er póstmeistari hans sakaður um að grafa undan stofnunni til þess að koma í veg fyrir að öll atkvæði skili sér í haust.Vísir/EPA

Svarar ekki hvort hann endurgreiddi framlögin

„Louis var fjáraflari á landsvísu fyrir Repúblikanaflokkinn. Hann bað starfsmenn um pening. Við gáfum honum pening og hann endurgreiddi okkur það með því að gefa okkur stóra bónusa,“ segir David Young sem var lengi mannauðsstjóri fyrirtækis DeJoy.

Opinber gögn styðja að starfsmenn New Breed studdu vel við bakið á frambjóðendum repúblikana. Margir starfsmenn hafi oft gefið sömu upphæð sama daginn. Frá 2000 til 2014 gáfu 124 einstaklingar tengdir New Breed repúblikönum meira en eina milljóna dollara, jafnvirði um 139 milljóna íslenskra króna.

Talsmaður DeJoy segir Washington Post að hann hafi ekki vitað til þess að starfsmenn hafi upplifað þrýsting um að gefa til repúblikana. Hann svaraði ekki beint hvort að DeJoy hefði endurgreitt starfsmönnum kosningaframlög en ítrekaði aðeins að hann teldi sig hafa fylgt lögum um reglum um fjármál stjórnmálaframboða.

Fimm ára fyrningarfrestur er á mögulegum brotum DeJoy gegn alríkislögum en brot gegn lögunum í Norður-Karólínu fyrnast ekki.


Tengdar fréttir

Kallar þingmenn snemma úr fríi vegna Póstsins

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur tekið þá ákvörðun að kalla þingmenn snemma heim úr sumarfríi til að greiða atkvæði um frumvarp um Póst Bandaríkjanna.

Trump teng­ir fjár­svelt­i pósts­ins við kosn­ing­arn­ar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri mótfallinn auknu fjármagni til Póstsins þar í landi. Viðurkenndi hann að það væri svo stofnunin gæti ekki brugðist við auknu álagi vegna fyrirhugaðra póstatkvæðagreiðslna í forsetakosningunum í nóvember.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×