Fótbolti

Guðlaugur Victor bestur: Einkunnir íslensku strákanna í leiknum

Íþróttadeild skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson í baráttunni við Declan Rice í leiknum í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson í baráttunni við Declan Rice í leiknum í dag. Getty/Hafliði Breiðfjörd

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu var hársbreidd frá því að ná eitthvað út úr leiknum á móti stjörnuprýddu ensku landsliði í leik liðanna í Þjóðadeildinni sem fór fram í Laugardalnum í dag.

Englendingar tryggðu sér sigur með marki Raheem Sterling úr vítaspyrnu undir loks leiks og Birki Bjarnasyni mistókst síðan að jafna metin í vítaspyrnu sem íslenska liðið fékk í uppbótartíma. Grátlegur endir á leiknum.

Íslenska liðið lék án margra lykilmanna í dag en íslensku strákarnir stóðu sig vel og áttu svo sannarlega skilið að fá eitthvað út úr þessum leik.

Guðlaugur Victor Pálsson var besti maður íslenska liðsins í leiknum og hjálpaði íslensku þjóðinni að gleyma því að það vantaði fyrirliðann Aron Einar Gunnarsson inn á miðjuna.

Guðlaugur Victor lék sinn langbesta landsleik á ferlinum og gaf ekkert eftir í baráttunni við ensku stjörnurnar.

Kári Árnason var einnig frábær í miðri vörninni með Sverri Inga Ingason sér við hlið. Þeir pökkuðu saman pirruðum Harry Kane sem var á endanum tekinn af velli.

Hér fyrir neðan má sjá mat blaðamanna Vísis á frammstöðu íslensku strákanna í leiknum í dag.

Byrjunarliðið:

Hannes Þór Halldórsson, markvörður 7 Hafði miklu minna að gera en hann bjóst eflaust við fyrir leikinn. Leysti það sem hann þurfti að gera með stæl og greip vel inn í. Fór í rangt horn í vítaspyrnu Raheems Sterling.

Hjörtur Hermannsson, hægri bakvörður 7 Stóð vaktina gegn Sterling, og síðan Jadon Sancho, einstaklega vel. Vann fullt af tæklingum. Gekk illa að koma boltanum á samherja.

Kári Árnason, miðvörður 9 Stjórnaði vörninni af mikilli festu og sýndi leiðtogahæfileika sína. Var, líkt og Sverrir Ingi, með Harry Kane í gjörgæslu.

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður 8 Lék einkar vel en fékk á sig vítaspyrnu undir lokin og var rekinn af velli. Afar traustur við hlið Kára. Réðist á alla lausa bolta nálægt vítateig Íslands og var vel á verði.

Hörður Björgvin Magnússon, vinstri bakvörður 8 Átti fullt í fangi með Sancho en hafði góðar gætur á Dortmund-manninum. Lék einn af sínum bestu landsleikjum.

Jón Dagur Þorsteinsson, hægri kantmaður 7 Agaður, skynsamur og sinnti varnarvinnunni vel. Fékk ekki mikil tækifæri til að láta til sín taka í sókninni og gekk illa að koma boltanum frá sér.

Guðlaugur Victor Pálsson, miðjumaður 9 Stjörnuframmistaða hjá Victori sem lék sinn langbesta landsleik á ferlinum. Spilaði af gríðarlega miklum krafti, var vinnusamur og ógnarsterkur í návígum. Öflugur í skallaboltunum.

Birkir Bjarnason, miðjumaður 6 Klúðraði vítaspyrnu í uppbótartíma. Hélt sig meira til hlés en Victor en var afar skynsamur og hélt stöðu sinni fyrir framan vörnina vel. Gegndi afar mikilvægu hlutverki í varnarleik Íslands. Hélt þokkalega í boltann.

Arnór Ingvi Traustason, vinstri kantmaður:6 Var aðallega í varnarhlutverki í leiknum. Átti ágætis skot beint úr aukaspyrnu rétt framhjá í fyrri hálfleik. Náði í seinna gula spjaldið á Kyle Walker.

Jón Daði Böðvarsson, framherji 6 Sterkur í loftinu og óhemju duglegur að vanda. Fékk enga þjónustu en var óþreytandi. Hefði að ósekju mátt halda boltanum betur og koma honum oftar á samherja.

Albert Guðmundsson, framherji 7 Frískur og átt nokkra góða spretti þótt hann hafi ekki fengið úr neinu að moða. Fiskaði fyrra gula spjaldið á Walker.

Varamenn:

Arnór Sigurðsson kom inn á fyrir Jón Dag Þorsteinsson á 65. mínútu 6 Sást lítið eftir að hann kom inn á og komst lítið í boltann.

Emil Hallfreðsson kom inn á fyrir Arnór Ingva Traustason á 76. mínútu Kom inn á til að þétta miðsvæðið síðasta stundarfjórðunginn. Skilaði boltanum vel frá sér. Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 90. mínútu Eftirminnileg innkoma. Fiskaði vítaspyrnu þegar hann var nýkominn inn á sínum fyrsta keppnisleik með íslenska landsliðinu. Spilaði of lítið til að fá einkunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×