Íslenski boltinn

Blikar og Víkingar héldu góðri fjarlægð á leiðinni út í Evrópuleikina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Breiðablik mætir Rosenborg í annað sinn í Evrópukeppni. Rosenborg vann einvígi liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu 2011, 5-2 samanlagt. Kristinn Steindórsson skoraði fyrir Blika í 2-0 sigri í seinni leiknum á Kópavogsvelli.
Breiðablik mætir Rosenborg í annað sinn í Evrópukeppni. Rosenborg vann einvígi liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu 2011, 5-2 samanlagt. Kristinn Steindórsson skoraði fyrir Blika í 2-0 sigri í seinni leiknum á Kópavogsvelli. vísir/vilhelm

Breiðablik og Víkingur héldu utan í morgun vegna leikja liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á morgun.

Breiðablik mætir Rosenborg í Þrándheimi í Noregi á meðan Víkingur fer til Slóveníu og mætir þar Olimpija Ljubljana.

Leikmenn pössuðu sig á að fylgja sóttvarnarreglum og gott bil var á milli þeirra í flugvélunum. Þá voru leikmenn og starfsfólk með grímur eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.

Vegna kórónuveirufaraldursins hefur fyrirkomulaginu í Evrópudeildinni verið breytt. Nú mætast lið ekki heima og að heiman heldur er bara einn leikur þar sem leikið verður til þrautar.

Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni á morgun; Breiðablik, Víkingur og FH. Fimleikafélagið fékk heimaleik en það mætir Dunajska Streda í Kaplakrika.

Allir leikir íslensku liðanna í Evrópudeildinni verða sýndir beint á sportrásum Stöðvar 2 á morgun.

Leikur Víkings og Olimpija Ljubljana hefst klukkan 16:30 og verður sýndur á Stöð 2 Sport. Rosenborg og Breiðablik eigast við klukkan 17:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Klukkan 17:15 er svo komið að leik FH og Dunajska Streda á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×