Sigurhátið Liverpool gæti þurft að fara fram í kyrrþey Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2020 08:30 Leikmenn Liverpool keyra hér um götur Liverpool eftir sigurinn í Meistaradeildinni. Getty/Nigel Roddis
Svo gæti farið að stuðningsmenn Liverpool fái ekki tækifæri til að fagna því saman þegar liðið vinnur loks enska meistaratitilinn eftir þrjátíu ára bið. Kórónuveiran gæti lokað á allt slíkt en það er samt spurning hvort stuðningsmenn Liverpool geti hreinlega haldið aftur af sér. Liverpool er með 25 stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og vantar bara sex stig til viðbótar til að tryggja sér langþráðan titil. Liverpool gæti meira að segja orðið enskur meistari áður en liðið spilar næsta leik en til þess þarf Manchester City að tapa bæði á miðvikudagskvöld og á laugardaginn. Það er ekki líklegt að það gerist en tapist annar þessara leikja getur Liverpool tryggt sér enska titilinn á Goodison Park á mánudagskvöldið. Það væri draumur margra stuðningsmanna Liverpool að sækja titilinn á Goodson Park og labba síðan á Anfield og fagna saman.The coronavirus is having a massive impact on world sport. @sistoney67 analyses the effect that it could have on British football. Could Premier League games be played with no fans?https://t.co/PPgFq9i15k#bbcfootballpic.twitter.com/6ugigyPB6z — BBC Sport (@BBCSport) March 9, 2020 Dragist það eitthvað á langinn að Liverpool tryggi sér titilinn gætu komið upp allt aðrar kringumstæður þegar liðið verður loksins enskur meistari eftir þrjátíu ára bið. Óvissan vegna kórónuveirunnar þýðir að mögulega verði að klára tímabilið í ensku úrvalsdeildinni með tóma velli. Önnur lönd hafa lokað leikvöngum fyrir áhorfendum og því talsverðar líkur á því að sama verði gert í ensku úrvalsdeildinni. Það er sem að það sé aðeins tímaspursmál hvenær Liverpool tryggir sér titilinn eru menn þar á bæ að sjálfsögðu farnir að hugsa um að fagna þessum miklu tímamótum.Liverpool's Premier League title celebrations in jeopardy amid coronavirus fears #LFChttps://t.co/KztkaFiamspic.twitter.com/VICqjLV4Vf — Daily Star Sport (@DailyStar_Sport) March 9, 2020 Fréttir bárust af því fyrir nokkru að Liverpool sé búið að skipuleggja sigurhátíð sína um götur Liverpool í maí enda mörgum enn ferskt í minni þegar Liverpool fagnaði sigrinum í Meistaradeildinni í byrjun júní í fyrra. Það er hins vegar óvíst hvort Liverpool fái leyfi fyrir slíkri skrúðgöngu í núverandi ástandi. Götur Liverpool voru troðfullar af fólki í júní í fyrra og þar væri smithættan mikil. Ráðamenn í breska íþróttaheiminum funduðu með breskum yfirvöldum í gær og þar var tekin sú ákvörðun að halda íþróttaleikvöngum opnum fyrir komandi leiki en sá fyrsti af þeim er leikur Manchester City og Arsenal á Ethiad á morgun. Það má heldur ekki líta framhjá því að það gæti verið erfitt að koma í veg fyrir fögnuð í Liverpool borg þegar titilinn vinnst enda fólkið þar búið að bíða ansi lengi eftir því að vinna ensku úrvalsdeildin. Enska úrvalsdeildin mun væntanlega meta stöðuna áfram á hverjum degi og það er öruggt að stuðningsmenn Liverpool bíði og voni að þeir þurfi ekki að sjá liðið sitt tryggja sér titilinn fyrir framan tóma stúku eða að sigurhátið Liverpool liðsins þurfi að fara fram í kyrrþey.The latest #coronavirus update surrounding the Premier League title has got Liverpool fans divided... There’s a chance the trophy may be lifted in front of an empty stadium. Thoughts, Reds? My latest https://t.co/80ZervRnzS — Georgia (@gjgoulding) March 9, 2020
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira