Innlent

Hvetja íbúa til þess að læsa hurðum, bif­reiðum og geymslum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mynd úr öryggismyndavélakerfi sem lögreglan á Suðurnesjum birti af einstaklingnum.
Mynd úr öryggismyndavélakerfi sem lögreglan á Suðurnesjum birti af einstaklingnum.

Lögreglan á Suðurnesjum hvetur íbúa í Reykjanesbæ til að læsa hurðum, bifreiðum og geymslum vegna einstaklings sem hefur verið að fara inn í heimahús og bílskúra á svæðinu.

Þá eru íbúar hvattir til þess að tilkynna til Neyðarlínunnar í síma 112 eða í gegnum Facebook ef þeir verða varir við grunsamlegar mannaferðir að næturlagi.

„Íbúar eru sérstaklega hvattir til að læsa öllum hurðum, bifreiðum og geymslum. Ef fólk er með eftirlitsmyndavélakerfi við hús sín þá biðjum við ykkur endilega um að renna í gegn um efnið og kanna hvort að eitthvað sé þar að finna sem getur aðstoðað okkur við leitina,“ segir í færslu lögreglunnar á Facebook þar sem jafnframt eru birtar myndir sem náðust úr öryggismyndavélakerfi af einstaklingnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×