Arnór og félagar úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/getty

Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö eru úr leik í Evrópudeildinni þetta árið.

Sænska liðið tapaði fyrri leiknum í Þýskalandi 2-1 og var í erfiðri stöðu fyrir síðari leikinn í kvöld. Arnór Ingvi var ekki með vegna meiðsla.

Josip Brekalo kom Wolfsburg yfir á 42. mínútu. Markið var fyrst dæmt af vegna rangstöðu en eftir skoðun í VARsjánni var það svo dæmt gott og gilt.

Yannick Gerhardt tvöfaldaði forystuna á 65. mínútu og fjórum mínútum síðar afgreiddi Joao Victor einvígð með þriðja marki Wolfsburg.

Lokatölur 3-0 sigur Wolfsburg og samanlagt 5-1 og þeir þýsku þar af leiðandi komnir í 16-liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira