Innlent

Dóms­mála­ráð­herra segir endur­upp­töku­dóm undir­strika mikil­vægi sjálf­stæðis frá fram­kvæmda­valdinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að endurupptökudómstóll verði settur á fót.
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að endurupptökudómstóll verði settur á fót. vísir/vilhelm

Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að ítreka sjálfstæði dómstóla með stofnun endurupptökudómstóls og reiknar með að frumvarp hennar um dómstólinn verði samþykkt á vorþingi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, ávarpaði málþing nýrrar Réttarfarsstofnunar Háskólans í Reykjavík í dag. Þar var rætt um fyrirhugaða stofnun endurupptökudóms samkvæmt frumvarpi ráðherra sem nú er til afgreiðslu á Alþingi.

„Fyrirkomulagið eins og það er í dag brýtur í bága við stjórnarskrá og við þurfum að koma þessu í betri farveg. Ég tel að með þessu frumvarpi sé það gert,“ segir dómsmálaráðherra. En frá árinu 2013 hefur sérstök endurupptökunefnd tekið fyrir kröfur um endurupptöku bæði saka- og einkamála.

Áslaug segir þá nefnd of mikið inni á framkvæmdavaldinu en þessi mál þurfi að heyra algerlega undir dómsvaldið. Hinn nýi dómur verði skipaður fimm dómurum sem starfi eingöngu í kring um einstök mál líkt og félagsdómur. „Þarna eru annars vegar dómarar sem eru sérstaklega í þessu en líka dómarar úr öllum dómstigum.“

Er mikil þö rf á þ essu r é ttarfarslega s éð ?

„Já, ég held að það sé mikil þörf á að hafa þessa heimild mjög skýra. Ég held að þetta verði mikil réttarbót, að koma þessu á fót,“ segir Áslaug Arna.

Í máli Kristínar Haraldsdóttur, lektors við lögfræðideild HR, kom fram að langflestum kröfum um endurupptöku mála sem dæmt hafi verið í fyrir Hæstarétti á árunum 2000 til 2012 hafi verið hafnað. Samkvæmt frumvarpi ráðherra yrðu skilyrði til endurupptöku einkamála rýmkuð.

„Í einkamálum liggur fyrir að heildarfjöldi beiðna hafi verið 48, 38 hafnað, fimm dregnar til baka og fjórar samþykktar. Í opinberum málum/sakamálum hafi heildarfjöldi beiðna verið 30, 28 hafnað en tvær samþykktar,“ sagði Kristín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×