Tíska og hönnun

Hildur Guðna á lista Vogue yfir best klæddu stjörnurnar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir vakti athygli á BAFTA verðlaununum í gær.
Tónskáldið Hildur Guðnadóttir vakti athygli á BAFTA verðlaununum í gær. Getty/Samir Hussein-Joe Maher

Eins og fór væntanlega ekki fram hjá neinum hélt sigurganga Hildar Guðnadóttur áfram um helgina og á sunnudag vann hún BAFTA verðlaun. Hildur hefur sópað að sér verðlaunum síðustu mánuði fyrir tónlist sína. BAFTA verðlaunin fékk hún fyrir tónlistina í kvikmyndinni um Jókerinn.

Vogue valdi Hildi eina af 20 best klæddu stjörnum kvöldsins á BAFTA í gær. Á listanum með henni voru meðal annars Kate Middleton, Zoë Kravitz, Charlize Theron, Rooney Mara, Renée Zellweger og Margot Robbie. Listann má finna á vef Vogue.

BAFTA verðlaunin 2. janúar 2020. Í kjól frá Lever Couture.Getty/Gareth Cattermole

BAFTA eru þriðju stóru verðlaunin sem Hildur vinnur í ár en hún hefur nú þegar unnið Golden Globe fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker og Grammy-verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl. Einnig hefur hún unnið nokkur smærri verðlaun eins og Critics' Choice Awards. Hildur er talin líkleg til þess að vinna Óskarsverðlaun og væri hún þá fyrst Íslendinga til þess að hljóta þann heiður.

Hildur hefur vakið athygli á verðlaunahátíðum í Bretlandi og Bandaríkjunum síðustu mánuði en hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi.

Grammy verðlaunin 26. janúar. Í kjól frá Iris Van Herpen.Getty/Alberto E. Rodriguez
Emmy verðlaunin 15. september.Getty/JC Olivera
Golden Globe verðlaunin 5. janúar 2020.Getty/Matt Winkelmeyer
Critics' Choice verðlaunin 12. janúar 2020.Getty/Steve Granitz
Hádegisverður fyrir þá sem tilnefndir eru til Óskarsverðlauna í ár. Hildur klæðist þarna buxum frá Helecopter, sem er íslensk hönnun.Getty/Steve Granitz
BAFTA viðburður fyrir alla sem hlutu tilnefningu. Hér er Hildur klædd í The Raven dress silkikjóll frá Hildi YeomanGetty/Dave J Hogan
Hollywood Critics Awards 9.janúar 2020.Getty/Jemal Countess

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×