Innlent

Rann­saka starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menningu Al­þingis með á­herslu ein­elti og á­reitni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Könnunin er þáttur í því ferli að kortleggja umfang ofbeldishegðunar, svo sem eineltis, kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni, á þjóðþingum Evrópu.
Könnunin er þáttur í því ferli að kortleggja umfang ofbeldishegðunar, svo sem eineltis, kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni, á þjóðþingum Evrópu. vísir/hanna

Alþingi stendur nú fyrir rannsókn á vinnustaðamenningu og starfsumhverfi þingsins með sérstakri áherslu á einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni.

Frá þessu er greint á vef Alþingis en það er Félagsvísindastofnun sem hefur umsjón með rannsókninni.

„Um er að ræða netkönnun með spurningum bæði til þingmanna og starfsmanna sem tekur mið af rannsókn Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og Evrópuráðsþingsins (PACE) á kynferðislegri áreitni og ofbeldi á evrópskum þjóðþingum og verða niðurstöður því að hluta til samanburðarhæfar.

Einnig verður nýleg rannsókn sem Félagsvísindastofnun vann fyrir velferðarráðuneytið á íslenskum vinnumarkaði, Valdbeiting á vinnustað, höfð til hliðsjónar og samanburðar,“ segir á vef þingsins.

Könnunin sé þannig þáttur í því ferli að kortleggja umfang ofbeldishegðunar, svo sem eineltis, kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni, á þjóðþingum Evrópu.

Þá er könnunin einnig liður í því að afla almennra upplýsinga um Alþingi sem vinnustað og sameiginlegt starfsumhverfi þingmanna og starfsmanna.

„Starfsmenn og þingmenn hafa fengið bréf frá forseta Alþingis með hvatningu til að taka þátt í könnuninni, þar sem bent er á að góð svörun auki verulega gæði könnunarinnar og gagnsemi.

Þá er áréttað að netföng verði ekki tengd svörum þátttakenda og engar aðrar persónugreinanlegar upplýsingar verði nýttar í rannsókninni, hvorki við greiningu gagna né framsetningu niðurstaðna í lokaskýrslu,“ segir á vef Alþingis.

Þing kemur saman klukkan 15 í dag eftir jólahlé. Tilhögun fundarins verður þannig að fyrst mun forsætisráðherra lesa forsetabréf um framhaldsfundi Alþingis. Síðan mun forseti þingsins fresta þingfundi til klukkan 16.

Þegar þingfundur hefst að nýju verður Guðrúnar Ögmundsdóttur, fyrrverandi þingmanns, minnst. Þá les forseti tilkynningar og síðan hefst umræða um stöðuna í stjórnmálum í byrjun árs og þau verkefni sem eru fram undan.


Tengdar fréttir

Gefur orðum Klausturdólganna nýja vídd

Forsætisráðherra segir sláandi hversu margar þingkonur hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi líkt og ný rannsókn sýnir. Ráðherrann ætlar að beita sér fyrir því að Alþingi taki málið til skoðunar. Stjórnsýslufræðingur sem vann rannsóknina segir hana gefa orðum Klausturdólganna alveg nýja vídd og sýni að konur hafi virkilega veikari stöðu en karlar í þinginu.

Meiri hluti Alþingismanna í yfirstétt

Í gær kom út ný bók dr. Hauks Arnþórssonar. Bókin byggir á gögnum úr gagnagrunni Alþingis yfir 27 ára tímabil ásamt könnun sem lögð var fyrir konur á Alþingi. Niðurstöðurnar sýna meðal annars tengsl stéttarstöðu þingmanna og framgöngu þeirra í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×