Innlent

Að minnsta kosti þrír hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Tveir hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurð sinn til Landsréttar.
Tveir hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurð sinn til Landsréttar. vísir/vilhelm

Að minnsta kosti þrír sexmenningana sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær hafa kært úrskurðinn til Landsréttar. Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þar sem kom fram að sex manns hafi í Héraðsdómi Reykjavíkur verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fimm þeirra til 31. janúar og einn til 27. janúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglu. Þetta hafi verið gert í þágu rannsóknar lögreglu á skipulagðri brotastarfsemi sem snúi meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.

Sexmenningarnir hafi verið handteknir síðastliðinn sólahring samfara mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu þar sem ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafi verið lagt hald á fíkniefni, vopn og fjármuni. Lögreglan verst allra frétta í málinu og í tilkynningunni í gær voru fjölmiðlar beðnir um að virða það.

Fréttastofa hafði í morgun samband við nokkra lögmenn mannana sem sögðust ekki hafa fengið miklar upplýsingar um málið sem væri á forstigi en málið virðist vera umfangsmikið.

Ómar Örn Bjarnþórsson hjá Íslensku lögfræðistofunni er lögmaður eins sexmenninganna. Hann hefur kært gæsluvarðahaldsúrskurð umbjóðana síns til Landsréttar.

Magnús Jónsson hjá Vivos lögmönnum sem er einnig lögmaður eins sexmenninganna hefur líka kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar. 

Þá hefur þriðji maðurinn einnig kært úrskurðinn til Landsréttar samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Fleiri lögmenn voru að íhuga að kæra gæsluvarðhaldsúrskurð umbjóðenda sinna til Landsréttar þegar fréttastofa hafði samband en þeir hafa þrjá sólahringa til þess.

Fréttin var uppfærð klukkan 12:10 með upplýsingum um kæru þriðja mannsins til Landsréttar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×