Sport

Sara rak þjálfarann sinn og fór að þjálfa sig sjálfa með frábærum árangri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og mánuði.
Sara Sigmundsdóttir hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og mánuði. Mynd/Instagram/sarasigmunds

Sara Sigmundsdóttir hefur staðið sig frábærlega að undanförnu og er búin að vinna hvert CrossFit mótið á fætur öðru. Hún segir í viðtali í hlaðvarpsþætti Snorra Björnssonar að lykillinn að velgengni sinni að undanförnu var stór ákvörðun sem hún tók síðasta haust.

Eftir vonbrigðin á síðustu heimsleikum þar sem Sara lenti í niðurskurði og endaði bara í nítjánda sæti þá hugsaði hún dæmið upp á nýtt. Fyrsta verk hennar var að hætta hjá þjálfaranum sínum og hún tók þá áhættusömu kvörðun að fara að þjálfa sig sjálfa.

„Ég fór til New York í fimm daga eftir heimsleikana og skemmti mér geðveikt vel. Ég kom síðan heim og ákvað: Þetta er planið mitt núna.  Ég ætlað að plana allt árið ef ég skyldi ekki finna þjálfara fyrir heimsleikana 2020 því ég ætlað að komast þangað. Ég ætlað að toppa mig smá fyrir Dúbaí og prófa það sem ég þarf að gera fyrir heimsleikana,“ segir Sara í „The Snorri Björns Podcast Show.“

Heldur Sara Sigmundsdóttir sigurgöngu sinni áfram á mótinu í Miami?Mynd/Instagram/sarasigmunds

Nú er ég bara þjálfarinn Sara



„Ég var bara að gera þetta sjálf en svo fékk ég aðstoð frá sérfræðingum. Sem dæmi ef ég þurfti að æfa sprettina þá heyrði ég í Silju (Úlfarsdóttur) en ég vildi ekki byrja á sprettinum fyrr en í janúar. Ég ætlaði ekki að fara að byrja á of mörgum nýjum hlutum í einu,“ segir Sara og heldur áfram.

„Ég hef oft hugsað hlutina út frá tilfinningu en núna er ég bara þjálfari og ég má ekki hugsa um íþróttamanninn Söru því nú er ég bara þjálfarinn Sara. Ég þurftu að kúpla mig út að ég væri að gera prógramm fyrir sjálfa mig. Ég þurfti að horfa á mig sem aðra persónu,“ segir Sara.

Sara setti sjálfri sér reglur og meira segja refsingar ef ákveðnar kringumstæður komu upp. „Ég setti alls konar reglur sem ég fer bara eftir núna. Ég var bara: Það er ekkert að fara að klikka,“ sagði Sara og bætti við: „Það er bara að svínvirka,“ sagði Sara.

Hún hefur haldið þessu áfram enda er þetta fyrirkomulag að virka. Hún vann The Open og bæði CrossFit mótin sem hún hefur keppt á.  

„Það er ótrúleg gaman að keppa og æfa. Þegar maður hefur dottið svona niður þá sérðu ekki að þetta gæti orðið gaman aftur. Ég hélt bara að ég væri bara búin. Þessi ár, 2015 og 2016, hefðu bara verið happaár og það væri bara kominn tími hjá mér að fara að hætta þessu,“ sagði Sara.

„Þegar ég hugsa til baka þá hugsa ég: Hvaða aumingi varstu? Hvað er að. Hafðu trú á þér. Ég er núna á einum besta stað sem ég hef verið, bæði andlega og líkamlega. Ég er því ógeðslega spennt fyrir þessu ári,“ sagði Sara.

Sara Sigmundsdóttir.Mynd/CrossFit

Ég ætla að verða heimsmeistari



„Ég hugsaði bara: Þessi tímarammi þar sem ég er íþróttamaður verður einhvern tímann búinn. Þetta er bara tímabil og ég þarf að nýta þetta tímabil eins vel og ég get. Ég hef ekki tíma í það að vera gera einhverja vitleysu fyrir einhvern annan eins og ef ég hefði bara látið þetta virka fyrir þjálfarann,“ sagði Sara.

„Ég ætla að verða heimsmeistari og ég þarf bara að hugsa: Hvað þarf ég að gera til þess að verða heimsmeistari? Ég þarf að gera breytingar þarna, þarf að gera þetta og hafa trú á sjálfri mér. Ef maður ætlar sér eitthvað þá nær maður því og maður finnur bara leið,“ sagði Sara.

„Ég finna það bara þegar eitthvað er að virka og þegar það er ekki að virka. Ég er ekki hrædd að taka þetta skref,“ sagði Sara.

Það má nálgast allan hlaðvarpsþáttinn með því að smella hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×