Innlent

Hátt á annan tug al­var­legra um­ferðar­slysa það sem af er ári

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Hátt í tuttugu alvarleg umferðarslys hafa orðið víða um landið frá ársbyrjun.
Hátt í tuttugu alvarleg umferðarslys hafa orðið víða um landið frá ársbyrjun. þórir KJARTANSSON/aðsend

Á annan tug alvarlegra umferðarslysa hafa orðið frá upphafi árs 2020. Aðeins nítján dagar eru liðnir af árinu. Alvarleg umferðarslys hafa komið upp og mörg þeirra hafa verið fjölmenn. Eitt banaslys hefur orðið það sem af er ári.

Eldur kom upp í bíl eftir árekstur tveggja þeirra á Korpúlfsstaðavegi á milli Barðastaða og Vesturlandsvegar þann 2. janúar síðastliðinn. Bílarnir sem lentu saman voru smárúta og fólksbíll og voru ökumenn einir í báðum bílum. Þeir slösuðust ekki í árekstrinum.

Seinna sama kvöld valt rúta skammt frá Þingvöllum. Á annan tug einstaklinga voru í rútunni. Viðbragðsaðilar í Árnessýslu voru kallaðir út laust eftir klukkan hálf tólf þann 2. janúar og voru sex sjúkrabílar sendir á vettvang, þrír frá Selfossi og þrír frá Reykjavík. Aðeins einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík.

Aðrir farþegar, ökumaður og leiðsögumaður voru fluttir á þjónustumiðstöðina á Þingvöllum, þar sem sjúkraflutningamenn skoðuðu hvern og einn. Allir farþegar um borð í rútunni voru erlendir ferðamenn.

Þegar rútan valt var mikil hálka og töluverður þæfingur á veginum. Þá sagði Haukur Grönli, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu í samtali við fréttastofu, að aðstæður hafi verið bærilegar þrátt fyrir smá vind og mikinn kulda en þá var sjö stiga frost á staðnum.

Björgunarsveit og lögregla komu ferðalöngum til aðstoðar

Þann 4. janúar fór rúta út af Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, sunnanmegin við Hvalfjarðargöngin. Loka þurfti veginum um Kjalarnes í báðar áttir á meðan viðbragðsaðilar voru að störfum. Fjöldahjálparmiðstöð var opnuð í Klébergsskóla á Kjalarnesi fyrir farþega um borð í rútunni.

Farþegar rútunnar voru fimmtán talsins og voru þeir fluttir í fjöldahjálparmiðstöðina ásamt farþegum annarra bifreiða en fleiri bílar lentu utan vegar á svæðinu þann daginn. Aðstæður voru mjög erfiðar og sagði Anna Filbert, meðlimur í björgunarsveitinni Kili á Kjalarnesi í samtali við fréttastofu, að mikið krap hafi verið á Kjalarnesi, blint og bálhvasst. Erfitt hafi verið að meta hversu marga bíla um ræddi.

Veginum um Kjalarnes var lokað í báðar áttir í kjölfar óhappsins.Vísir/Friðrik

„Ég hef ekki yfirsýnina. Já, það eru þó nokkrir bílar sem fóru út af en svo sem enginn sem hefur oltið.“

Sumir bílar sem urðu á vegi björgunarsveitarfólks voru mannlausir en í öðrum tilvikum aðstoðuðu björgunarsveitir og lögregla fólk við að komast úr bílunum og í skjól.

Festingar á gámaflutningabíl til rannsóknar hjá lögreglu

Þrír erlendir ferðamenn á bílaleigubíl fóru út af hringveginum í Skjónugili um kílómetra fyrir norðan Vík í Mýrdal síðdegis þann 9. janúar. Ferðamennirnir þrír sluppu allir ómeiddir samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vík.

Myrkur var skollið á þegar bíllinn fór út af og urðu töluverðar skemmdir á honum. Mikil hálka var á veginum til viðbótar við snjó og hvassviðri.

Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandsvegi þann tíunda janúar síðastliðinn þegar tómur gámur á gámaflutningabíl sem var á norðurleið losnaði af bílnum með þeim afleiðingum að hann fauk á vöruflutningabíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Minni bíll lenti líka í slysinu og þurfti að flytja ökumenn fólksbílsins og vöruflutningabílsins á gjörgæslu.

Tengivagn virðist hafa hafnað á tveimur bifreiðumvísir/jkj

Annar þeirra hlaut alvarlega höfuðáverka og var líklega talinn höfuðkúpubrotinn. Hinn slapp eitthvað betur en var samt sem áður slasaður. Báðir ökumenn eru karlmenn.

Lögreglan rannsakar nú hvort festingarnar á gámabílnum hafi verið nægilega tryggar. Gunnar Kristinn Valsson, annar ökumaðurinn sem lenti í slysinu og slasaðist illa í árekstrinum telur sig hafa sloppið vel úr slysinu. Þetta sagði hann í kvöldfréttum RÚV, laugardaginn 11. janúar, og bætti hann því við að læknar segðu að hann myndi ná fullum bata.

Hann kvaðst ekkert muna nema glefsur úr slysinu og því hafi verið „létt sjokk“ að sjá myndir af bílnum. „Ég sé þarna einhvern gámabíl og eftir sem ég frétti þá hægði ég á mér niður í svona þrjátíu og þá man ég ekki mikið meir,“ sagði Gunnar.

Rúta stúdenta á leið í skíðaferð til Akureyrar valt

Á fimmta tug háskólastúdenta voru í rútu sem valt á þjóðvegi 1 nærri bænum Öxl rétt utan við Blönduós. Þrír voru fluttir með þyrlu landhelgisgæslunnar á bráðamóttökuna í Reykjavík og var opnuð fjöldahjálparmiðstöð Rauða Krossins á Blönduósi.

Háskólanemarnir voru á leiðinni til Akureyrar í skíðaferð og voru þeir allir stúdentar á heilbrigðisvísindasviði og voru því margir lækna- og hjúkrunarfræðinemar um borð. Áverkar þeirra sem lentu í slysinu voru metnir af starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi.

aðsend

Hjálmar Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við fréttastofu að ástandið á hópnum hafi verið þokkalegt miðað við aðstæður. Um hafi verið að ræða háorkuslys þar sem fólk væri í miklu sjokki eftir á og gæti þurft að leita sér aðstoðar.

Sjá einnig: Hjúkrunarfræðinemi í ferðinni segir læknanemana hafa unnið mikla hetjudáð

Aðstæðurnar á veginum voru að sögn mjög slæmar. Vilhjálmur Stefánsson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, sagði að hann teldi að hlýrra hafi verið en búist hafi verið við og því hafi verið hálka á veginum sem ekki var fyrirséð. „Ég segi aldrei að þetta sé veðrinu eða veginum að kenna en ég held að þetta sé algjört óhappatilvik. Hún flaug hálkan og ég hef ekki séð svona vindhviður áður,“ sagði Vilhjálmur og bætti því við að vindhviðurnar hafi verið eins og fallbyssukúlur.

Keyrði inn í hringtorg á móti umferð

Harður árekstur varð á milli lögreglubíls og jeppa á Kirkjubæjarklaustri þann 12. janúar. Lögreglumaður var fluttur á Selfoss til aðhlynningar en hann var ekki talinn alvarlega meiddur. Áreksturinn varð á hringtorginu á Kirkjubæjarklaustri og hafði ökumaður jeppans, sem er ferðamaður, ekið á móti umferð í torginu með þeim afleiðingum að árekstur varð.

Bíll valt laust eftir miðnætti þann 13. janúar á Kjalarnesi. Tveir voru í bílnum en þeir slösuðust ekki.

Banaslys varð á Reykjanesbraut að kvöldi 12. janúar nærri álverinu í Straumsvík. Snjóruðningstæki og fólksbíll skullu saman og var að auki einn fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl. Reykjanesbraut var í kjölfarið lokað í nokkrar klukkustundir vegna slyssins og voru viðbragðsaðilar að störfum á vettvangi langt fram á kvöld.

Áreksturinn varð í hringtorginu á Kirkjubæjarklaustri þegar ferðamaður ók á jeppa á móti umferð og klessti á lögreglubíl.VÍSIR/TEITUR ÞORKELSSON

Maðurinn sem lést var rúmlega fertugur en hann var ökumaður fólksbílsins. Maðurinn var pólskur en var búsettur hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni virtist ökumaðurinn hafa misst stjórn á bílnum. Mjög slæmt færi var á Reykjanesbraut þegar slysið varð.

Slysið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Sjá einnig: Rúmlega fertugur Pólverji lést í banaslysinu á Reykjanesbraut

Nokkur slys urðu á Suðurnesjum 16. janúar en engin alvarleg slys á fólki. Ökumaður missti bifreið sína út af Reykjanesbraut, annar ökumaður ók bíl sínum í snjókrapa á Reykjanesbraut skammt frá Kúagerði. Þess var getið að hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði um 20 metra utan vegar.

Ökumaðurinn leitaði sjálfur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem hann fékk aðhlynningu. Þangað þurfti einnig að flytja tvo ökumenn sem lentu í árekstri á Garðvegi í Suðurnesjabæ. Þá ók unglingur aftan á aðra bifreið á Hringbraut í Reykjanesbæ. Ökumaðurinn var ekki orðinn átján ára og málið því leyst með aðkomu forráðamanns.

Ástand tveggja barna alvarlegt

Þrjú börn og einn fullorðinn sem lentu í árekstri tveggja bifreiða á Skeiðarársandi þann 17. janúar liggja enn á gjörgæslu en tvö barnanna eru sögð alvarlega slösuð. Hluti hópsins er enn til eftirlits en tveir voru útskrifaðir síðar sama kvöld.

Sjá einnig: Hlúðu að sautján ferðamönnum sem komu að slysinu

Sjö manns slösuðust í árekstrinum sem varð á Suðurlandsvegi við Háöldukvísl á Skeiðarársandi síðdegis 17. janúar. Farþegar bílanna voru níu talsins og voru frá Frakklandi og Suður-Kóreu. Börnin þrjú eru á aldrinum 5 til 10 ára.

Engar frekari upplýsingar hafa fengist um ástand barnanna.

Bíll fór í höfnina í Hafnarfirði

Bíll fór í höfnina við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Þrír ungir piltar voru í bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild með sjúkrabíl. Ástand tveggja pilta sem voru í bílnum er sagt alvarlegt. Að sögn lögreglu liggja þeir á gjörgæsludeild Landspítalans en líðan þriðja piltsins er sögð „eftir atvikum.“

Vísir/Sigurjón

Fjölmennt viðbragðslið var kallað til eftir að tilkynning barst um að bifreiðin hafi farið fram af bryggjunni og hafnað í sjónum. Fulltrúar lögreglu, slökkviliðs, landhelgisgæslu og björgunarsveita var á staðnum. Þá komu átta kafarar að aðgerðunum með beinum hætti, þar af þrír björgunarkafarar slökkviliðs sem hjálpuðu drengjunum upp úr ísilögðum sjónum. Tveir þeirra voru enn fastir í bílnum þegar kafara bar að garði.

Sjá einnig: Hafnarfjarðarkirkja þéttsetin eftir slysið

Rauði krossinn veitti ungmennum sálrænan stuðning í Fríkirkjunni í Hafnarfirði sem var opnuð vegna slyssins á föstudagskvöld. Haldin var bænastund vegna drengjanna þriggja í gærkvöldi í Hafnarfjarðarkirkju og var hún þéttsetin.

Loka þurfti Sandgerðisvegi vegna umferðarslyss í gær. Harður árekstur varð milli tveggja bíla sem komu úr gagnstæðri átt. Tveir voru í öðrum bílnum og einn í hinum og voru allir þrír sendir með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.

Engar frekari upplýsingar hafa fengist um líðan fólksins.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×