Innlent

Ísaksskóli eignast Ísaksskóla

Agnar Már Másson skrifar
Frá undirituninni í morgun. Frá vinstri: Salóme Guðmundsdóttir, meðstjórnandi í stjórn Ísaksskóla, Páll Harðarson, stjórnarformaður í stjórn Ísaksskóla, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla.
Frá undirituninni í morgun. Frá vinstri: Salóme Guðmundsdóttir, meðstjórnandi í stjórn Ísaksskóla, Páll Harðarson, stjórnarformaður í stjórn Ísaksskóla, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla. Reykjavíkurborg

Í dag voru undirrituð afsal og önnur lokagögn vegna kaupa Ísaksskóla á fasteigninni að Bólstaðarhlíð 20. Þar með hefur Reykjavíkurborg lokið sölu á húsnæðinu og er skólinn aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem hefur verið heimili skólastarfsins um áratugaskeið.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011. 

Skóli Ísaks Jónssonar er sjálfstætt starfandi grunnskóli í Hlíðunum fyrir 5 ára börn, auk barna í 1. til 4. bekk.

Kaupverðið er 456,8 milljónir króna að því er fram kom í tilkynningu í síðasta mánuði, og er það sagt byggja á upphaflegu kaupverði frá árinu 2011 uppreiknuðu samkvæmt byggingarvísitölu

Árið 2011 samþykkti borgarráð að kaupa fasteignir Skóla Ísaks Jónssonar ses. fyrir tæpar 292 milljónir króna en það var greitt með yfirtöku á áhvílandi skuldum sem námu tæplega 254 milljónum króna og með fjármögnun viðhaldsframkvæmda.

Í kaupsamningnum var sérstakt ákvæði til 15 ára þar sem stefnt var að því að skólinn eignaðist húsnæðið aftur þegar fjárhagsstaða hans leyfði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í dag. Samkvæmt ársreikningum nam eigið fé skólans um 588 milljónum króna í árslok 2025, samanborið við neikvætt eigið fé upp á 13 milljónir króna í árslok 2011, árið sem Reykjavíkur borg keypti fasteignirnar.

Skólinn á 100 ára afmæli á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×