Jóhann Berg lagði upp í þægilegum sigri á botnliðinu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jóhann Berg í baráttunni í dag.
Jóhann Berg í baráttunni í dag. vísir/Getty

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley þegar liðið sótti Norwich heim í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en Norwich er langneðst í deildinni og er þegar fallið.

Emi Buendia og Josip Drmic virtust ekki hafa áhuga á að klára mótið en þeir nældu sér báðir í rautt spjald í fyrri hálfleik og lék Norwich því tveimur mönnum færri allan síðari hálfleikinn.

Chris Wood kom Burnley yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Jóhanni Berg.

Jóhanni var skipt af velli á 60.mínútu en félagar hans kláruðu leikinn nokkuð þægilega. Á 80.mínútu gerði Ben Godfrey sjálfsmark og 0-2 sigur Burnley niðurstaðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira